Erlent

Tíu látnir í bruna á tyrk­nesku skíða­hóteli

Atli Ísleifsson skrifar
Frá vettvangi brunans í nótt.
Frá vettvangi brunans í nótt. AP

Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir að eldur kom upp á skíðahóteli í tyrkneska bænum Kartalkaya í norðvestyuhluta landsins í nótt.

Talsmaður yfirvalda segir að eldurinn hafi komið upp á veitingastað skíðahótelsins.

Samkvæmt fyrstu fréttum var tilkynnt að sex væri látnir og að á fjórða tug hefðu slasast í brunanum, en skömmu síðar var tala látinna hækkuð í tíu. Í tyrkneskum fjölmiðlum segir að tveir hafi látist eftir að hafa stokkið út um glugga úr brennandi húsinu.

Ekki liggur fyrir um upptök eldsins, en 234 gestir voru á hótelinu þegar eldurinn kom upp. Á myndum mátti sjá eld og reyk leggja frá efstu hæðum hótelsins.

Kartalkaya er vinsæll skíðabær í Koroglu-fjöllunum í Bolu-héraði í norðvesturhluta Tyrklands, um þrjú hundruð kílómetrum frá Istanbul.

Fjölmargir Tyrkir eru í fríi á þessum tíma árs þar sem vetrarfrí er í skólum og hótel mörg hver fullbókuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×