Fótbolti

Hefur skoðanir á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með lands­liðið

Aron Guðmundsson skrifar
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík og fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður.
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík og fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður. Vísir/EINAR

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík vissi að einn daginn kæmi að þeim tímapunkti að félagið þyrfti að horfa á eftir þjálfara sínum Arnari Gunnlaugssyni til annarra starfa. Kári er ánægður með að Sölvi Geir Ottesen taki við keflinu í Víkinni og er, sem fyrrverandi varnarmaður með ákveðna skoðun á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með íslenska landsliðið.

„Þetta var svo sem planið allan tímann. Að reyna sann­færa Sölva um að taka við þessu eftir að Arnar myndi hverfa á braut,“ segir Kári. „Ég vissi svo sem um leið og ég settist í minn stól hér í Víkinni að Arnar yrði ekki eilífur hérna. Eðli málsins sam­kvæmt myndi svona fær þjálfari alltaf fá tækifæri, sama hvort það yrði er­lendis eða hjá lands­liðinu. Ég horfði alltaf á Sölva sem eftir­mann Arnars.“

Kári veit vel hvað Sölvi kemur með að borðinu.

„Hann er náttúru­lega mikill sigur­vegari, reynir allt sem hann getur til þess að vinna. Það er hans besti kostur held ég í þessu. Svo er hann mjög góður í mann­legum sam­skiptum og hefur lært alveg helling í sam­starfi sínu með Arnari. Ég hef fulla trú á honum.“

Munu ekki kúvenda öllu

Það hvort mikill munur verði á stjórnar­háttum hans og Arnars eigi eftir að koma al­menni­lega í ljós.

„Sölvi hefur ekki verið í þessari stöðu áður en það er oft munur á sóknar- og varnar­mönnum í grunninn og ég held að þetta sé ekkert frábrugðið því. Sölvi er náttúru­lega í grunnin varnar­maður og aðeins ag­gresívari heldur en Arnar. Kannski verða áherslurnar aðeins aðrar en við ætlum samt ekki að breyta of miklu. Það er ástæðan fyrir því að þetta eru svona innan­húss breytingar. Sölvi veit nákvæm­lega hvernig við spilum, allt þjálfara­t­eymið einnig. Við ætlum að breyta ein­hverju en ekki kúvenda öllu því flotta starfi sem hefur verið unnið hér síðastliðin ár.“

Falleg stund þegar Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen lyftu titlinum í síðasta leik ferilsins.

En telur Kári að hægt verði að viðhalda þeim góða árangri sem lið Víkings Reykja­víkur náði undir stjórn Arnars?

„Að sjálfsögðu. Við erum með frábært lið. Arnar er risa partur af okkar vel­gengni en það er líka ástæðan fyrir því að við viljum ekki breyta of miklu. Hann hefur byggt upp frábært lið hérna, frá því hvernig við spilum sem og hug­mynda­fræðinni á bak við þetta. Við munum halda áfram að þróast, ein­hverju verður breytt, en við munum einnig halda í ákveðin gildi.“

Fín lending fyrir alla

Hvað viðskilnaðinn við Arnar varðar hafði Kári þetta að segja:

„Við erum bara mjög glaðir og ánægðir fyrir hönd Arnars. Bara ánægðir með að allt endaði mjög vel. KSÍ keypti hann af okkur, það er það sem Arnar vildi. Að prófa eitt­hvað nýtt, hann er búinn að vera hérna lengi, rifið félagið upp og gert það mjög fag­mann­lega. Við erum mjög ánægðir með það að bæði hann og við séum ánægð með þetta. Það var kannski bara kominn tími á skipti. Menn endast ekki oft svona lengi í svona starfi. Þetta var fín lending fyrir alla held ég.“

Arnar Gunnlaugsson, nýr landsliðsþjálfari og fyrrverandi þjálfari Víkings ReykjavíkurVísir/Anton

Kári er sjálfur fyrr­verandi at­vinnu- og lands­liðs­maður og með sterkar skoðanir á ís­lenska lands­liðinu og hvernig fót­bolta það spilar. Hvernig lýst honum á komandi tíma liðsins undir stjórn Arnars?

„Mér lýst mjög vel á þetta. Mér finnst mjög lík­legt að hann nái öllum lands­liðsmönnum á sitt band, Arnar hefur mjög heillandi persónu­leika og er sömu­leiðis góður leið­togi. Ég ætla svo sannar­lega að vona að þeir hlusti á það sem að hann hefur að segja. Ég hef svo sem alveg snert á því líka í út­sendingum í kringum lands­leikina að það þarf að laga varnar­leik liðsins. Ég ætla að vona að það verði hans fyrsta verk að reyna laga hann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×