Skoðun

Bönnum í­þrótta­mót barna fyrir kl. 10 um helgar

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Börnin mín æfa bæði íþróttir af kappi og ég er þakklát fyrir frábært íþróttastarf sem þau hafa aðgang að. Linnulaus íþróttamót draga hins vegar úr ánægju þess að eiga börn í íþróttum. Um þessar mundir er nefnilega gerð samfélagsleg krafa um mætingu a.m.k. tveggja ættliða og helst allra systkina til að hvetja börnin áfram allt frá því þau eru nánast ómálga en geta þó þóst sparka í bolta. Einhverjir sjá e.t.v. fyrir sér heilbrigðar samverustundir fjölskyldunnar, en í alltof mörgum tilfellum eru þetta alltof æstir ættingjar að hvetja börnin sín áfram milli þess sem liðið gúffar í sig sérlega óhollum veitingum. Ekki misskilja mig, ég missi helst ekki af þessum viðburðum. En það er auðvitað hvorki mönnum né börnum bjóðandi að hefja hvers kyns leika um allt land kl. 8 um helgar. Ég hef því rætt það opinskátt að tímasetning íþróttamóta ætti að vera kosningamál! Ég er handviss um mikinn þverpólitískan stuðning við slíkt mál.

Það var athyglisvert fyrir fólk með jarðtengingu og heilbrigða skynsemi að fylgjast með kosningabaráttu Flokks fólksins, flokksins hennar Ingu Sæland. Helsta kosningaloforð flokksins var að skattleysismörk yrðu hækkuð í 450.000 kr. á mánuði. Þá yrði öryrkjum og eldri borgurum tryggðar 450.000 kr. á mánuði í ráðstöfunartekjur skatta- og skerðingarlaust. Þessi loforð hafa dunið á kjósendum og forsvarsmenn flokksins hafa lagt mesta áherslu á þessi mál. Á heimasíðu flokksins eru þetta efstu tvö málin yfir svokölluð forgangsmál Flokks fólksins. Það er víst að fjölmargir kjósendur hafi greitt flokknum sitt atkvæði á grundvelli loforðanna. Þó var það svo að það tók Ingu og fylgisveina hennar einungis nokkra daga að svíkja þessi loforð kinnroðalaust eftir kosningar. Hún byrjaði í raun að gefa eftir strax að þeim loknum og svikin voru síðan skjalfest með ríkisstjórnarsáttmálanum. Ég er ekki viss um að kjósendur muni gleyma þessu svo glatt. Mögulega mun þess gæta strax í næstu sveitarstjórnarkosningum.

Ég skynja ríkan vilja fjölmargra foreldra til þess að koma í veg fyrir kappleiki og sýningar barna á ókristilegum tímum um helgar. Bann við slíku með lögum er þó langsótt. Loforð um slíkt myndi þó eflaust vekja mikla athygli og trekkja að. Ég er ekki viss um að frambjóðendur Flokks fólksins séu mjög bundnir við þessa iðju um helgar. Annars hefði þeim e.t.v. komið þetta til hugar því ekki vefst það fyrir þeim að þurfa ekki að efna gefin loforð.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins




Skoðun

Sjá meira


×