Erlent

Sökuð um að hafa pyntað dóttur sína fyrir fylgj­endur og peninga

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Konan er sökuð um að hafa valdið dóttur sinni ómældum þjáningum í þeim tilgangi að fá fleiri fylgjendur á samfélagsmiðlum og falast eftir peningum.
Konan er sökuð um að hafa valdið dóttur sinni ómældum þjáningum í þeim tilgangi að fá fleiri fylgjendur á samfélagsmiðlum og falast eftir peningum. Getty

Þrjátíu og fjögurra ára gömul kona í Queensland í Ástralíu hefur verið ákærð fyrir að pynta eins árs gamla dóttur sína í þeim tilgangi að auka við sig fylgjendum á samfélagsmiðlum og falast eftir fjármunum.

Lögmaður konunnar fór fram á að henni yrði sleppt fram að réttarhöldum en dómari ákvað í morgun að fresta niðurstöðu hvað það varðar. Sagðist hann þurfa tíma til að melta málið, þar sem ásakanirnar væru þess eðlis að ganga fram af öllu rétt-þenkjandi fólki.

Konan hefur ekki verið nafngreind en hún var handtekin fyrr í mánuðinum og ákærð fyrir að hafa eitrað fyrir barninu að minnsta kosti fimm sinnum, fyrir að undirbúa glæp, pynta barnið og framleiða myndefni þar sem barni er valdið skaða. 

Þá hefur hún einnig verið ákærð fyrir svik.

Ákæruvaldið segir konuna hafa játað fyrir maka sínum að hafa gefið stúlkunni lyfseðilsskyld lyf sem var ekki ávísað á barnið. Þá segir saksóknarinn í málinu að öryggismyndavélar hafi fangað það þegar konan var að fikta við súrefnisleiðslu sem stúlkan var með í nefinu, með sprautu í hendinni.

Að sögn saksóknarans varð stúlkan meðvitundarlaus í kjölfarið, án þess að læknar gætu fundið á því nokkrar skýringar. 

Ákæruvaldið segir konuna hafa pyntað stúlkuna viljandi, með því að gefa henni lyf sem gerðu hana veika. Hún er sögð hafa gefið barninu nokkrar tegundir af lyfseðilsskyldum lyfjum, sem ollu barninu verulegri þjáningu.

Þá tók konan myndskeið af stúlkunni þar sem hún þjáðist og deildi á samfélagsmiðlum, til að fá fleiri fylgjendur og til að falast eftir fjármunum.

Ákæruvaldið hefur sett sig upp á móti því að konan verði látin laus fram að réttarhöldum, ekki síst þar sem hún hafi til þess hvata að reyna að skaða stúlkuna aftur til að sýna fram á að hún sé raunverulega veik og hreinsa þannig sjálfa sig af sök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×