Erlent

Líkfundur í ánni þar sem síðast sást til tvíburasystra

Jón Þór Stefánsson skrifar
Ekkert hefur spurst til Elizu og Henriettu Huzti síðan aðfaranótt. 7. janúar síðastliðins.
Ekkert hefur spurst til Elizu og Henriettu Huzti síðan aðfaranótt. 7. janúar síðastliðins. Lögrglan í Skotlandi

Lögreglan í Skotlandi hefur staðfest líkfund í ánni Dee í Aberdeen í Skotlandi, skammt frá þeim stað þar sem síðast sást til tvíburasystra sem hurfu sporlaust 7. janúar síðastliðinn. Enn á eftir að bera kennsl á líkið.

Systurnar Eliza og Henrietta Huzti eru 32 ára gamlar og upprunalega frá Ungverjalandi, en þær fluttu til Skotlands fyrir nokkrum árum. Þær eru í raun þríburasystur, en þær eiga líka bróður sem er þriðji þríburinn.

Síðast er vitað til ferða systranna um miðja nótt í miklum kulda þann 7. janúar, en þá sást til þeirra í myndefni úr öryggismyndavélum í miðbæ Aberdeen. Ekki er vitað hvers vegna þær voru á ferð.

Þær sáust skammt frá ánni Dee, sem á ármynni í Aberdeen, en talið er að hún hafi verið ísilögð í kuldanum.

Málið var áberandi í fjölmiðlum í Bretlandi, en umfangsmikil leit bar engan árangur. Lögreglan gaf út að ekki væri grunur um að neitt saknæmt hefði átt sér stað.

En í dag var greint frá því að lík hefði fundist í vatninu. Eins og áður segir á eftir að bera kennsl á líkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×