Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2025 13:00 Martin Hermannsson á ferðinni með boltann í leiknum á móti Ungverjum á fimmtudaginn. FIBA Basketball Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson komst á fimmtudagskvöldið í hóp þeirra elstu sem hafa skorað 25 stig eða meira í leik með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Martin spilaði sinn fyrsta landsleik í heilt ár og var með 25 stig og frábæra skotnýtingu í tapleiknum á móti Ungverjalandi. Martin heldur upp á 31 árs afmælið sitt í haust og telst því ekki orðinn mjög gamall. Hann er engu að síður einn af þeim tíu elstu sem hafa skorað svona mikið í einum landsleik. Metið á Pétur Karl Guðmundsson sem var 32 ára, eins mánaða og sextán daga þegar hann skoraði 25 stig á móti Kýpur í desember 1990. Næstelstur til að ná þessu var Ívar Webster sem skoraði 25 stig á móti Englandi í maí 1987. Hann var þá 32 ára og 17 daga. Þriðji elsti er Jónatan Bow sem skoraði 25 stig á móti Noregi í maí 1997. Hann var þá 31 árs, 3 mánaða og 3 daga. Fjórði elsti er Valur Ingimundarson og Pétur er síðan aftur á listanum í fimmta sætinu. Valur var 31 árs, tveggja mánaða og nítján daga þegar hann skoraði 25 stig á móti Englandi í maí 1993 en Pétur var þegar hann skoraði 33 stig á móti Eistlandi í lok desember 1989. Hann var þá 31 árs, eins mánaða og 29 daga gamall. Aðrir sem náðu að vera eldri en Martin voru þeir Jón Sigurðsson (1982), Herbert Arnarson (2001), Guðmundur Bragason (1998), Jón Arnór Stefánsson (2013) og Teitur Örlygsson (1997). Herbert náði þessu tvisvar eins og Pétur. Martin er hins vegar einn af þeim tíu elstu sem hafa skorað 25 stig eða meira í leik með landsliðinu. Martin og félagar í íslenska landsliðinu mæta Tyrkjum í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 í kvöld en sigri tryggja þeir sér sæti á Eurobasket. Það verður fylgst vel með leiknum hér inn á Vísi. Pétur Guðmundsson er sá elsti sem náði að skora 25 stig eða meira í leik. Elstu menn til að skora 25 stig fyrir Ísland: 32 ára - 1 mánaða - 16 daga (1) Pétur Karl Guðmundsson 25 stig á móti Englandi 1990 32 ára - 0 mánaða - 17 daga (2) Ívar Webster 25 stig á móti Englandi 1987 31 árs - 3 mánaða - 3 daga (3) Jónatan Bow 25 stig á móti Noregi 1997 31 árs - 2 mánaða - 19 daga (4) Valur Ingimundarson 25 stig á móti Englandi 1993 31 árs - 1 mánaða - 29 daga (5) Pétur Karl Guðmundsson 33 stig á móti Eistlandi 1989 31 árs - 0 mánaða - 29 daga (6) Jón Sigurðsson 25 stig á móti Englandi 1982 31 árs - 0 mánaða - 28 daga (7) Herbert Arnarson 35 stig á móti San Marínó 2001 31 árs - 0 mánaða - 20 daga (8) Guðmundur Bragason 27 stig á móti Noregi 1998 30 ára - 10 mánaða - 23 daga (9) Jón Arnór Stefánsson 32 stig á móti Búlgaríu 2013 30 ára - 10 mánaða - 20 daga (10) Teitur Örlygsson 27 stig á móti Eistlandi 1997 30 ára - 8 mánaða - 23 daga (11) Herbert Arnarson 27 stig á móti Portúgal 2001 30 ára - 5 mánaða - 4 daga (12) Martin Hermannsson 25 stig á móti Ungverjalandi 2025 Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Sjá meira
Martin spilaði sinn fyrsta landsleik í heilt ár og var með 25 stig og frábæra skotnýtingu í tapleiknum á móti Ungverjalandi. Martin heldur upp á 31 árs afmælið sitt í haust og telst því ekki orðinn mjög gamall. Hann er engu að síður einn af þeim tíu elstu sem hafa skorað svona mikið í einum landsleik. Metið á Pétur Karl Guðmundsson sem var 32 ára, eins mánaða og sextán daga þegar hann skoraði 25 stig á móti Kýpur í desember 1990. Næstelstur til að ná þessu var Ívar Webster sem skoraði 25 stig á móti Englandi í maí 1987. Hann var þá 32 ára og 17 daga. Þriðji elsti er Jónatan Bow sem skoraði 25 stig á móti Noregi í maí 1997. Hann var þá 31 árs, 3 mánaða og 3 daga. Fjórði elsti er Valur Ingimundarson og Pétur er síðan aftur á listanum í fimmta sætinu. Valur var 31 árs, tveggja mánaða og nítján daga þegar hann skoraði 25 stig á móti Englandi í maí 1993 en Pétur var þegar hann skoraði 33 stig á móti Eistlandi í lok desember 1989. Hann var þá 31 árs, eins mánaða og 29 daga gamall. Aðrir sem náðu að vera eldri en Martin voru þeir Jón Sigurðsson (1982), Herbert Arnarson (2001), Guðmundur Bragason (1998), Jón Arnór Stefánsson (2013) og Teitur Örlygsson (1997). Herbert náði þessu tvisvar eins og Pétur. Martin er hins vegar einn af þeim tíu elstu sem hafa skorað 25 stig eða meira í leik með landsliðinu. Martin og félagar í íslenska landsliðinu mæta Tyrkjum í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 í kvöld en sigri tryggja þeir sér sæti á Eurobasket. Það verður fylgst vel með leiknum hér inn á Vísi. Pétur Guðmundsson er sá elsti sem náði að skora 25 stig eða meira í leik. Elstu menn til að skora 25 stig fyrir Ísland: 32 ára - 1 mánaða - 16 daga (1) Pétur Karl Guðmundsson 25 stig á móti Englandi 1990 32 ára - 0 mánaða - 17 daga (2) Ívar Webster 25 stig á móti Englandi 1987 31 árs - 3 mánaða - 3 daga (3) Jónatan Bow 25 stig á móti Noregi 1997 31 árs - 2 mánaða - 19 daga (4) Valur Ingimundarson 25 stig á móti Englandi 1993 31 árs - 1 mánaða - 29 daga (5) Pétur Karl Guðmundsson 33 stig á móti Eistlandi 1989 31 árs - 0 mánaða - 29 daga (6) Jón Sigurðsson 25 stig á móti Englandi 1982 31 árs - 0 mánaða - 28 daga (7) Herbert Arnarson 35 stig á móti San Marínó 2001 31 árs - 0 mánaða - 20 daga (8) Guðmundur Bragason 27 stig á móti Noregi 1998 30 ára - 10 mánaða - 23 daga (9) Jón Arnór Stefánsson 32 stig á móti Búlgaríu 2013 30 ára - 10 mánaða - 20 daga (10) Teitur Örlygsson 27 stig á móti Eistlandi 1997 30 ára - 8 mánaða - 23 daga (11) Herbert Arnarson 27 stig á móti Portúgal 2001 30 ára - 5 mánaða - 4 daga (12) Martin Hermannsson 25 stig á móti Ungverjalandi 2025
Elstu menn til að skora 25 stig fyrir Ísland: 32 ára - 1 mánaða - 16 daga (1) Pétur Karl Guðmundsson 25 stig á móti Englandi 1990 32 ára - 0 mánaða - 17 daga (2) Ívar Webster 25 stig á móti Englandi 1987 31 árs - 3 mánaða - 3 daga (3) Jónatan Bow 25 stig á móti Noregi 1997 31 árs - 2 mánaða - 19 daga (4) Valur Ingimundarson 25 stig á móti Englandi 1993 31 árs - 1 mánaða - 29 daga (5) Pétur Karl Guðmundsson 33 stig á móti Eistlandi 1989 31 árs - 0 mánaða - 29 daga (6) Jón Sigurðsson 25 stig á móti Englandi 1982 31 árs - 0 mánaða - 28 daga (7) Herbert Arnarson 35 stig á móti San Marínó 2001 31 árs - 0 mánaða - 20 daga (8) Guðmundur Bragason 27 stig á móti Noregi 1998 30 ára - 10 mánaða - 23 daga (9) Jón Arnór Stefánsson 32 stig á móti Búlgaríu 2013 30 ára - 10 mánaða - 20 daga (10) Teitur Örlygsson 27 stig á móti Eistlandi 1997 30 ára - 8 mánaða - 23 daga (11) Herbert Arnarson 27 stig á móti Portúgal 2001 30 ára - 5 mánaða - 4 daga (12) Martin Hermannsson 25 stig á móti Ungverjalandi 2025
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Sjá meira