Viðskipti erlent

Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa að­gerðar­lausir hjá“

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá vinstri: Francois-Philippe Champagne nýsköpunar, vísinda- og iðnaðarráðherra, Melanie Joly utanríkisráðherra og Dominic LeBlanc fjármálaráðherra.
Frá vinstri: Francois-Philippe Champagne nýsköpunar, vísinda- og iðnaðarráðherra, Melanie Joly utanríkisráðherra og Dominic LeBlanc fjármálaráðherra. AP/Adrian Wyld

Ráðamenn í Kanada hafa tilkynnti viðbragðstolla á innfluttar vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump setti 25 prósenta toll á innflutning stáls og áls til Bandaríkjanna. Fjármálaráðherra Kanada segir tolla Trumps og árásir hans á hagkerfi Kanada vera óréttláta.

Trump hafi valdið gífurlegum skaða á því sem var best heppnaða viðskiptasambandi heimsins.

„Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá,“ sagði Dominic LeBlanc samkvæmt frétt Ríkisútvarps Kanada.

Tollar Kanadamanna ná til innflutnings sem verðmetinn er á um 29,8 milljarða dala og er það sambærilegt tollum Bandaríkjanna. Tollarnir taka gildi á miðnætti og eru á vörur eins og tölvubúnað, íþróttabúnað, heimilistæki, skjái og annað.

Áður höfðu leiðtogar Evrópusambandsins tilkynnti sambærilega tolla á Bandaríkin.

Þegar Kanadamenn tilkynntu tollana í dag gagnrýndi utanríkisráðherra landsins Trump fyrir ummæli hans um innlimun Kanada í Bandaríkin og óreiðuna sem hann hefði ollið.

„Eini fastinn í þessu óréttlætanlega viðskiptastríði virðist vera orðræða Trumps um að innlima landið okkar með efnahagsþvingunum,“ sagði Mélanie Joly. „Í gær hallaði hann landamæri okkar ímyndaða línu og endurtók virðingarlausan áróður sinn um 51. ríki Bandaríkjanna.“

Ráðamenn í Kanada hafa varað íbúa við því að Trump sé alvara þegar hann tali um að vilja eignast Kanada.

Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Trumps, ítrekaði þetta í viðtali á Fox News í dag. Þar sagði hann að það besta í stöðunni væri að sameina hagkerfi Kanada og Bandaríkjanna á þann hátt að Kanada yrði 51. ríki Bandaríkjanna.

Kanadamenn yrðu að vinna með Bandaríkjamönnum að þessu og ættu að íhuga allt það sem þeir myndu græða á því.

Þessi ummæli Trump-liða um Kanada hafa valdið mikilli reiði meðal Kanadamanna á undanförnum vikum. Ef marka má kannanir vestanhafs er lítill vilji meðal þeirra á því að sameinast Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×