Börn Hackmans ekki í erfðaskránni en erfa hann samt Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2025 09:48 Gene Hackman og Betsy Arakawa árið 2003. AP/Mark J. Terrill Þrátt fyrir að börn leikarans Gene Hackman séu ekki nefnd í erfðaskrá hans er útlit fyrir að þau muni fá um áttatíu milljóna dala eigur hans.
Efni erfðaskráa bandaríska stórleikarans Gene Hackman (95) og eiginkonu hans Betsy Arakawa (65), sem fundust bæði á látin á heimili sínu í Santa Fe í lok febrúar, hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum vestanhafs eftir að hún var gerð opinber á dögunum. Þær voru báðar skrifaðar sama daginn í júní 2005 en þá gerði Hackman Arakawa að umsjónarmanni og viðtakanda allra eftirlátinna eigna sinna. Ef hún myndi falla frá yrði Michael G. Sutin, lögmaður, gerður að umsjónarmanni búsins. Hann féll hins vegar frá árið 2019. Þá kom einnig fram í erfðaskrá hennar að ef hún léti lífið innan við níutíu daga frá dauða Hackmans myndi auður þeirra fara í sjóð sem yrði gefinn til góðgerðarmála. Sjá einnig: Betsy Arakawa lést viku á undan Gene Hackman Komið er í ljós að Arakawa lést viku á undan Hackman og segja sérfræðingar í samtali við BBC að þess vegna sé líklegt að þrjú börn sem Hackman átti með Faye Maltese, fyrrverandi eiginkonu hans, muni erfa auð hans. Þau heita Christopher (65), Elizabeth (62) og Leslie (58). Börn Hackman voru hvorki nefnd í erfðaskrá hans né í erfðaskrá Arakawa. Arakawa lést vegna afar sjaldgæfrar sýkingar en Hackman lést viku síðar vegna hjartasjúkdóms. Hann var með Alzheimers á seinni stigum og er talið að hann hafi ekki vitað að Arakawa væri látin.
Bandaríkin Andlát Andlát Gene Hackman Hollywood Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira