Viðskipti innlent

Markaðs­mála- og upp­lifunar­deild Isavia lögð niður

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Jón Cleon var deildarstjóri markaðsmála og upplifunar hjá Isavia.
Jón Cleon var deildarstjóri markaðsmála og upplifunar hjá Isavia. Vísir

Deild markaðsmála og upplifunar hefur verið lögð niður hjá Isavia ohf. Jon Cleon, fráfarandi deildarstjóri, segir þakklæti honum efst í huga þegar hann líti yfir farinn veg, en hann segir deildina hafa sýnt fram á að markaðsmál og upplifun séu ekki bara kostnaður heldur fjárfesting.

Það gustaði talsvert um Isavia snemma á árinu þegar fyrirtækið sætti harðri gagnrýni fyrir að hafa kostað auglýsingu í einu dýrasta auglýsingaplássi landsins, rétt fyrir áramótaskaupið. Skúli í Subway fór þar fremstur í flokki gagnrýnenda, og ritaði hann grein á Vísi þar sem hann furðaði sig á óráðsíu Isavia. Greinin vakti mikla athygli.

Skúli rak í upphafi greinar sinnar þá staðreynd að Isavia væri í eigu okkar allra og þar af leiðandi eigi almenningur þá fjármuni sem þar væri höndlað með.

Isavia þvertók svo fyrir það að almenningur hefði staðið kostnað af auglýsingunni.

Jón Cleon, áðurnefndur deildarstjóri hjá deild markaðsmála og upplifunar, var sá sem svaraði fyrir ásakanirnar.

„Auglýsingin var ekki fjármögnuð með opinberum fjármunum heldur úr sameiginlegum markaðssjóði sem allir rekstraraðilar á vellinum leggja til,“ sagði Jón.

Keflavíkurflugvöllur eitt okkar mikilvægasta vörumerki

Jón fer yfir farinn veg í færslu á samfélagsmiðlum, en hann kveðst stoltur yfir fólkinu í deildinni og þeim breytingum sem þeim hafi tekist að skapa saman. Hann tiltekur nokkur atriði:

  • Fundum nýja rödd og ásynd fyrir Keflavíkurflugvöll - frískandi, íslenska og hlýlega
  • Breyttum flóknu umhverfi í einfaldari, skýrari og heildstæðari upplifun
  • Settum manneskjuna í fyrsta sæti - bæði starfsfólk og gesti
  • Sýndum fram á að amarkaðsmál og upplifun er ekki bara kostnaður, heldur fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka

„KEF er eitt af okkar mikilvægustu vörumerkjum, fyrsta snerting margra við landið og síðasti viðkomustaður þeirra áður en þau kveðja það. Að fá að móta þessa upplifun hefur verið krefjandi en ótrúlega gefandi verkefni,“ segir Jón.

Þá segir hann að þróun flugvallarins haldi áfram og hann óskar flugvellinum alls hins besta á þeirri vegferð.


Tengdar fréttir

Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar

Skúli Gunnar Sigfússon, fjárfestir og einn hluthafa í Isavia ohf. líkt og allir Íslendinga eins og hann titlar sig að gefnu tilefni, ritar grein á Vísi þar sem hann furðar sig á óráðsíu Isavia ohf. Deildarstjóri hafnar því að almannafé fari í auglýsinguna sem fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli fjármagni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×