Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2025 07:01 Fyrri ríkisstjórn ákvað að fella niður almennar ívilnanir til rafbílakaupa og tók þess í stað upp styrki sem sækja þarf um til Orkusjóðs. Breytingin tók gildi í fyrra. Vísir/Vilhelm Stærstur hluti ríkisstyrkja og ívilnana til rafbílakaupa hefur farið til tekjuhæsta hóps samfélagsins undanfarin ár. Dreifingin breyttist ekki eftir að beinir styrkir voru teknir upp í stað ívilnana í fyrra. Unnið er að endurskoðun á styrkjunum til þess að gera orkuskipti í samgöngum réttlátari.
Hátt í helmingur þeirra 1,4 milljarða króna sem Orkusjóður veitti einstaklingum í styrki til rafbílakaupa rann til tveggja hæstu tekjutíundanna þegar miðað er við heildartekjur einstaklinga í fyrra. Þar af fóru hátt í 400 milljónir króna eða tæp 28 prósent af heildinni til tekjuhæsta hópsins. Þegar litið er til fjölskyldutekna runnu tæp sextíu prósent rafbílastyrkjanna til tveggja hæstu tekjutíundanna. Efnaðasti tekjuhópurinn fékk meira en þriðjung styrkjanna. Til samanburðar fengu sex tekjulægstu tíundirnar saman 12,7 prósent styrkjanna, að því er lesa má úr svörum umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Greiðslur úr Orkusjóði til einstaklinga eftir tekjutíund heildartekna árið 2024.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið Árið 2024 var fyrsta árið sem stjórnvöld studdu við orkuskipti í vegasamgöngum með beinum styrkjum frekar en með niðurfelling virðisaukaskatts á vistvæna bíla. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, lét fara yfir hvernig stuðningur við rafbílakaup hefði dreifst eftir tekjum, búsetu og aldri eftir að hann tók við ráðuneytinu í vetur. Hann sagði í útvarpsviðtali í byrjun árs að hann teldi að of geyst hefði verið farið í að draga úr ívilnunum til rafbílakaupa. Breytt fyrirkomulag ríkisstuðningsins virðist lítil áhrif hafa haft á dreifingu hans á meðal tekjuhópa. Árið 2021 fóru um einn og hálfur milljarður af virðisaukaskattsívilnunum til hæstu tekjutíundarinnar, hátt í tvöfalt meira en til næsthæstu tíundarinnar, samkvæmt niðurstöðum athugunar fjármála- og efnahagsráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Virðisaukaskattsívilnanir vegna kaupa á vistvænum bílum eftir tekjutíundum árið 2021.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið Vinna er nú í gangi innan ráðuneytisins við að endurskoða hvernig styrkir eru veittir til rafbílakaupa. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis kemur fram að í þeirri vinnu sé meðal annars horft til markmiða um réttlát umskipti. Til standi að kynna niðurstöður þeirrar vinnu bráðlega. Þrír fjórðu hlutar til höfuðborgarsvæðisins Almennt skiptust rafbílastyrkirnir eftir sveitarfélögum í hlutfalli við íbúafjölda þeirra. Þannig runnu um 36 prósent styrkjanna, alls um 490 milljónir króna, til Reykvíkinga en 35 prósent landsmanna búa í höfuðborginni. Rúmur milljarður af styrkjunum fóru til sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eða þrír fjórðu hlutar heildarinnar. Greiðslur úr Orkusjóði vegna rafbílakaupa eftir sveitarfélögum árið 2024.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið Einu sveitarfélögin utan suðvesturhornsins sem komust á lista yfir þau tíu sem fengu mestu styrkina voru Árborg (8. sæti) og Akureyri (9. sæti). Athygli vekur að Árborg fékk meiri styrki til rafbílakaupa þrátt fyrir að íbúar í Akureyrarbæ sé um átta þúsund fleiri. Langflestir þeirra sem fengu styrki úr Orkusjóði til þess að kaupa rafknúna bíla eru yfir miðjum aldri. Þeir eru að jafnaði á milli fimmtugs og sjötugs. Greiðslur úr Orkusjóði eftir aldri einstaklinga sem hljóta rafbílastyrki árið 2024.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið Hrun í rafbílasölu eftir niðurfellingu ívilnana Verulegur samdráttur varð í nýskráningum rafbíla í fyrra eftir að nýtt fyrirkomulag var tekið upp við að styrkja orkuskiptin. Samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins var rétt um fjórðungur seldra bíla frá janúar til nóvember í fyrra rafbílar en rúm 44 prósent ef litið er fram hjá þeim bílum sem bílaleigur keyptu. Til samanburðar voru rafbílar 71,7 prósent seldra bíla til einstaklinga árið 2023. Aðeins sextán prósent þeirra bíla sem bílaleigurnar keyptu það ár voru rafbílar. Niðurfelling ívilnana var þó ekki eina ástæða þess að rafbílasala dróst saman í fyrra. Nýskráning fólksbíla almennt dróst saman um 42 prósent á milli ára og hefur hátt vaxtastig eflaust latt fólk til þess að fjárfesta í nýjum bílum.
Vistvænir bílar Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira