Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2025 15:33 Kevin Durant hefur ekki gert stóra hluti með liði Phoenix Suns þrátt fyrir að spila þar með öðrum stórstjörnum. Getty/Chris Coduto NBA körfuboltafélagið Phoenix Suns ákvað í gær að reka þjálfara sinn Mike Budenholzer eftir að liðinu mistókst að komast í úrslitakeppnina þrátt fyrir að vera með stórstjörnulið.
Þetta eru enn ein vonbrigðin á ferli Kevin Durant síðan að hann ákvað að yfirgefa meistaralið Golden State Warriors á sínum tíma. Durant kom til Phoenix Suns árið 2023 en félagið hefur þegar rekið þrjá þjálfara sína síðan þá. Budenholzer tók pokann sinn í gær, Monty Williams í maí 2023 og Frank Vogel í maí 2024. Þetta var vissulega mikið hörmungartímabil fyrir Suns sem vann bara 36 af 82 leikjum (44%) og endaði í ellefta sæti í Vesturdeildinni. Durant er orðinn 36 ára gamall en var með 26,6 stig og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu. Hann varð meistari tvö ár í röð með Golden State frá 2017 til 2018 en yfirgaf félagið eftir tap í lokaúrslitum 2019. Á þeim sex árum sem eru liðin síðan þá hefur hann spilað með Brooklyn Nets og Phoenix Suns og aðeins náð að vinna tvö einvígi af sex í úrslitakeppni. Núverandi samningur hans er út næsta tímabil þar sem hann mun fá 54,7 milljónir dala í laun eða sjö milljarða króna. Það er þó almennt búist við því að honum verði skipti til annars liðs í sumar en það á þó eftir að koma í ljós. View this post on Instagram A post shared by Basketball Network (@basketball.network)
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira