Daníel Tristan og Mikael með stoðsendingar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. maí 2025 16:28 Mikael hefur spilað vel á leiktíðinni. Ulrik Pedersen/Getty Images Daníel Tristan Guðjohnsen lagði upp annað mark Malmö í 4-1 útisigri á Degerfors. Þá lagði Mikael Neville Anderson upp eina mark AGF í 1-3 tapi gegn Randers.
Daníel Tristan var í byrjunarliði Malmö sem sótti Degerfors heim í efstu deild sænska fótboltans. Arnór Sigurðsson var ekki í hóp að þessu sinni. Heimamenn í Malmö komust yfir með marki úr vítaspyrnu snemma leiks áður en Daníel Tristan vann boltann á miðjum vellinum. Svo vel vann íslenska ungstirnið boltann að hann skaust inn fyrir vörn heimamanna og Emmanuel Ekong var kominn einn í gegn þegar tæpur hálftími var liðinn, staðan 0-2 í hálfleik. Emmanuel Ekong visar prov på sin snabbhet och MFF går upp till 2-0 mot Degerfors! 🔵📲 Se matchen på Max pic.twitter.com/TMVEWs87iy— Sports on Max 🇸🇪 (@sportsonmaxse) May 11, 2025 Malmö komst þremur mörkum yfir áður en heimamenn minnkuðu muninn úr vítaspyrnu. Daníel Tristan var svo tekinn af velli þegar tuttugu mínútur lifðu leiks. Gestirnir bættu svo fjórða markinu við í lok leiks. Malmö er í 5. sæti með 14 stig að loknum 8 umferðum. Ari Sigurpálsson spilaði 68 mínútur þegar Elfsborg vann Öster 1-0 á útivelli. Elfsborg er í 4. sæti með 16 stig. Í Danmörku var Mikael á sínum stað í byrjunarliði AGF. Íslenski landsliðsmaðurinn fann markahrókinn Patrick Mortensen sem jafnaði metin þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum. Gestirnir frá Randers skoruðu tvívegis í síðari hálfleik og þar við sat. AGF er í 5. sæti með 40 stig eftir 30 leiki. Liðið hefur tapað fimm leikjum í röð.
Fótbolti Sænski boltinn Danski boltinn Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Fleiri fréttir Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Sjá meira