Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2025 13:48 Umfangsmikla námuvinnslu eftir sjaldgæfum málmum má finna í Xinjianghéraði í Kína. AP/Chinatopix Ráðamenn í Bandaríkjunum og Kína hafa, samkvæmt Donald Trump forseta Bandaríkjanna, gert nýtt samkomulag varðandi viðskipti ríkjanna, vegabréfsáritanir og þá sérstaklega sjaldgæfa málma og segla úr þeim. Viðræður milli ríkjanna hafa átt sér stað í Lundúnum undanfarna daga en deilurnar milli ríkjanna snúa að mestu leyti að tollum og svokölluðum sjaldgæfum málmum.
Eftir að Trump beitti Kína og fjölmörg önnur ríki heims, umfangsmiklum tollum í apríl lýstu ráðamenn í Kína því yfir að útflutningur yrði takmarkaður á nokkrum tegundum sjaldgæfra málma og segla sem eru framleiddir úr þeim. Slíkir seglar eru notaðir í framleiðslu alls konar vara, eins og snjallsíma og orrustuþotur. Seglarnir eru sérstaklega nauðsynlegir við framleiðslu rafmagnsbíla. Takmarkanirnar hafa komið niður á birgðakeðjum fjölmargra framleiðenda víða um heim. Forsvarsmenn stórra fyrirtækja víða um heim hafa varað við umfangsmiklum og slæmum áhrifum á hagkerfi heimsins vegna þessara takmarkana en Kínverjar eru svo gott sem allsráðandi á sviði sjaldgæfra málma. Erindrekar ríkjanna tilkynntu í gær að þeir hefðu komist að samkomulagi um drög að áætlun til að koma viðskiptaviðræðum ríkjanna aftur á skrið. Sem liður í því yrðu refsiaðgerðir sem ríkin hefðu beitt hvoru öðru felldar niður. Viðræðurnar í Lundunum byggðu á fyrri viðræðum erindreka ríkjanna sem fóru fram í Sviss á dögunum. Sjá einnig: Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Trump tilkynnti samkomulagið á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, en þar sagði hann að Bandaríkjamenn myndu öðlast ótakmarkaðan aðgang að sjaldgæfum málmum og seglum og að tollur á kínverskar vörur yrðu 55 prósent. Í staðinn myndu Kínverjar, samkvæmt Trump, meðal annars fá að sækja bandaríska háskóla og sagði forsetinn einnig að Kínverjar myndu setja tíu prósenta toll á vörur frá Bandaríkjunum. „SAMBANDIÐ ER STÓRKOSTLEGT!“ skrifaði Trump. Hann bætti svo við í annarri færslu að hann og Xi Jinping, forseti Kína, myndu vinna náið saman að því að opna kínverska markaði fyrir bandarísk fyrirtæki. Bæði ríkin myndu hagnast mikið á því. Nákvæmlega hvað þessi drög fela í sér liggur ekki fyrir. Bandaríkjamenn hafa, auk þess að beita tollum, einnig takmarkað aðgengi Kínverja að háþróuðum tölvuflögum, hugbúnaði, flugvélahreyflum og öðru. Heimildarmaður New York Times segir að þessar takmarkanir yrðu að einhverju leyti felldar niður, í skiptum fyrir það að Kínverjar felldu niður takmarkanir á útflutningi sjaldgæfra málma og tengdum afurðum til Bandaríkjanna. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir samband Bandaríkjanna og Kína stórkostlegt.AP/Alex Brandon Mikilvægir málmar Sjaldgæfir málmar finnast víða í skorpu jarðarinnar. Þeir eru þó sjaldan í æðum eða á takmörkuðum svæðum, heldur finnast þeir oftar en ekki dreifðir í tilteknu bergi. Vegna þessa getur reynst erfitt að sækja þá í jörðina og þar að auki er vinnsla þeirra erfið og hefur slæm áhrif á umhverfið. Málmarnir eru þó nauðsynlegir við framleiðslu nútíma tækja og tóla eins og tölva, bíla, rafhlaðna og hergagna, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar Alþjóðaorkumálastofnunarinnar áætla að Kínverjar grafi um 61 prósent af sjaldgæfum málmum heimsins úr jörðu. Þegar kemur að vinnslu þeirra eru Kínverjar þó með um 92 prósent markaðsshlutdeild á heimsvísu. Kínverjar eru nánast þeir einu sem framleiða nokkra tiltekna málma. Undir lok síðasta árs gerðist það í fyrsta sinn að ráðamenn í Kína lokuðu á aðgengi Bandaríkjamanna að nokkrum tegundum sjaldgæfra málma. Þeir málmar eru meðal annars notaðir við framleiðslu hálfleiðara, ljósleiðara, sólarsella og byssukúlna, svo eitthvað sé nefnt.
Bandaríkin Kína Donald Trump Námuvinnsla Mest lesið Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent