Þegar illfygli leiðir stórmennskubrjálæðing Ole Anton Bieltvedt skrifar 23. júní 2025 06:01 Heimurinn horfir nú upp á slíka stöðu. Illfyglið, sem fyrir mér er, Benjamin Netanyahu, leiðir stórmennskubrjálæðinginn, sem fyrir mér er, Donald Trump, inn í stórhættulega stöðu, ekki bara í Miðausturlöndum, heldur heiminum öllum. Og, til mikilla vonbrigða og ama, nánast áfalls, dansa umkomulitlir og aumir vestrænir leiðtogar - menn, sem vilja teljast vitrir leiðtogar, halda, að þeir séu það, en eru það fæstir - mest með og í kringum sýndarmennskusegginn. Hvar er evrópsk skynsemi, yfirvegun, sjálfstæði og reisn? Aðeins fyrir þremur mánuðum, í marz síðastliðnum, héldu Íranir, Rússar og Kínverjar sameiginlega sjóheræfingu. Eru einhverjir, sem halda, að þetta hafi bara verið tilburðir og innantómt sjónarspil, eða halda Netanyahu og Trump kannske, að þeir séu svo magnaðir og miklir, að þeir geti líka gefið skít í Pútín og Xi!? Báðir blindaðir af eigin stórmennskubrjálæði!? Hér gæti auðvitað orðið til ný, stórhættuleg heimsspenna. Öryggismálaráðherra Bandaríkjanna (Director of National Intelligence), Tulsi Gabbard, sagði í vitnisburði fyrir Bandaríkjaþingi, líka nú í marz, að bandaríska leyniþjónustan telji, að Íran sé ekki í stakk búið til að smíða kjarnorkuvopn í náinni framtíð. Um svipað leyti skýrði CNN-fréttastöðin frá því, að skv. þeirra beztu heimildum væri minnst 3 ár í það, að Íran gæti, að öllu óbreyttu, smíðað kjarnorkusprengju. Í samræmi við þetta mat, tók Bandaríkjastjórn upp nýjar viðræður við Íran til að tryggja, að kjarnorkuþróunarprógramm þeirra myndi eingöngu ná til friðsamlegra nota, ekki til smíði karnorkusprengju. Sagði Trump í því sambandi, að hann vildi koma í veg fyrir „eyðileggingu og dauða“ með samningum. Var það reyndar eitt helzta kosningarloforð Trumps, að draga Bandaríkin út úr öllum stríðsrekstri og forðast það, á allan hátt, að blanda Bandaríkjunum inn í ný stríðsátök á erlendri grund, kannske 10-20 þúnd kílómetra í burtu, sem oft hafði verið. Höfðu samningamenn Bandaríkjamanna og Írans haldið 5 fundi, en þeir fóru fram í Oman, og stóð til að halda þann 6. sunnudaginn 15. júní. Af honum varð þó aldrei, því Netanyahu greip þá inn í, tók frammi fyrir hendurnar á Trump, með fyrirvarlausri stórárás á Íran13. júní. Fullyrti hann, að Íranir væru nokkrum mánuðum frá því, að fullsmíða kjarnorkusprengju. Fyrir undirrituðum hreinn tilbúningur, lygi, enda sannanir engar. Þarna svínaði Netanyahu í raun illilega á Trump, sem var, sem sagt, í miðri samningalotu við Íran, en hann kreysti fram bros, lét eins og þetta væri allt í hans hendi og þágu. Sagði árás Ísraels frábæra (excellent). Bætti því svo við, að „við“, hann, réði nú yfir allri lofthelgi Írans. Hann væri sá, sem hér hefði orðið og valdið. Sagði reyndar svo, að hann mælti með því við íbúa Teherans, að þeir myndu koma sér út úr borginni, það væri hans vinsamlega ráðgjöf, forða sér í öryggi, en sennilega veit forsetinn ekki, að í Teheran búa 10 milljónir manna, um 17 milljónir með úthverfum, og, að Teheran er umlykt hrjóstugu eyðimerkur- og fjallalandslagi. Hvert átti blessað fólkið þá að fara og hvernig? Bílar eru ekki í eigu allra í Íran, vegakerfi ekki með þeim fullkomnustu og benzín af skornum skammti, sérstaklega nú, eftir að Ísraelsmenn höfðu lagt sig alla fram um að sprengja upp og eyða eldsneytisbirgðum Írana. Þessar staðreyndir og spurningar komu auðvitað ekki upp í huga þess manns, sem hafði fíflað bandaríska þjóð til að gera sig að valdamesta manni veraldar, end djúpur skilningur, staðgóð þekking og skýr hugsun vart hans sterkasta hlið. Augljóst var, að Netanyahu vildi ekki friðsamlega lausn, vildi ekki frið, heldur bara stríð, blóð og eyðileggingu, að hans hætti á Gaza, völd og yfirráð með ofbeldi og eyðileggingu, þó á kostnað alheimsins væri, en hann hafði séð leið til að neyða stórmennskubrjálæðinginn í það með sér. Enginn sér nú fyrir, til hvers þetta frumhlaup og þessi hömlulausi og hættulegi stríðsrekstur kann að leiða. Olíuverð og efnahagsleg þróun öll, ekki bara í Miðausturlöndum, heldur um allan heim, er eitt, inn í það blandast svo siglingar milli Asíu og Evrópu, heldur er svo stóra spurningun, hvort allt byggðajafnvægi fari ekki aftur úr skorðum í Miðausturlöndum - í Íran búa 90 milljónir manna - sem aftur hefði í för með sér stórfellda fólksflutninga, flóðbylgjur flóttamana, og önnur vandræði og fár. Enginn virðist spyrja, hvort Íslraelsmenn búi yfir kjarnorkuvopnum, sem þeir gera örugglega, hafa sennilega gert í 40-50 ár, þó þeir neiti að staðfesta það, og allir virðast halda, að sé bara fínt, að Ísraelsmenn búi yfir kjarnorkuvopnum, sem þó, fyrir mér, eru sennilega mestu ofbeldisseggir og hættulegasta þjóð veraldar. Árið 2015, eftir 10 ára flóknar og harðar samningaumleitanir Bandaríkjamanna, Þjóðverja, Breta, Frakka, Rússa og Kínverja við Íran, tókst samkomulag, sem var kallað Íranssamningurinn (ensk skammstöfun JCPOA), en hann tryggði, að kjarnorkuþróunarprógramm Írana gengi einvörðungu út á friðsamlega notkun kjarnorku, og, að Alþjóðakjarnorkumálastofunin, IAEA, myndi hafa náið eftirlit með prógramminu og tryggja það, að svo yrði. Þessum samningi sagði Donald Trump hins vegar einhliða upp á sínu fyrra kjörtímabili, 2018, og þar með lagði hann í reynd grundvöllinn að því uppnámi, þeirri hættu og fári, nánast fyrir alheiminn, sem við stöndum nú frammi fyrir. Auðvitað er klerkastjórnin í Íran hræðileg, en það er ekki málið hér og nú. Það er innanríkismál Írana, sem þeir verða að ráða fram úr og leysa sjálfir. Í hvers konar heimi lifum við? Hvers konar illfygli og stórmennsku-brjálæðinga erum við endurtekið að kjósa til valda og leiða yfir okkur? Höfundur er samfélagsrýnir Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson Skoðun Getur hver sem er boðið sig fram til sveitarstjórna? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir Skoðun Borgarlínan verður kosningamálið í vor Þórir Garðarsson Skoðun Sleggjunni beitt – gegn almenningi Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon Skoðun Maðurinn sem ég kynntist í löggunni Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun Nýi Landspítalinn: klúður sem enginn þorir lengur að ræða Sigurður Sigurðsson Skoðun Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getur hver sem er boðið sig fram til sveitarstjórna? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Sleggjunni beitt – gegn almenningi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Borgarlínan verður kosningamálið í vor Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Framboð sem byggir á trú á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson skrifar Skoðun Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gott frumvarp en hverjir komast raunverulega að borðinu? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun María Rut og samkeppnishæfnin Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa það sem þarf Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kjósum mann sem klárar verkin! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg er ramminn, ekki málverkið Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stjórnendur eru brúin – Ísland á að leiða fagmennsku, ekki draga úr henni Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Bærinn er fólkið Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Verðbólga á Íslandi er ekki slys – hún er afleiðing ákvarðana Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að læra af fortíðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Jaðardrengirnir okkar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Kristrún og Mazzucato Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Þegar alþjóðaviðskipti eru vopnvædd Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon skrifar Skoðun Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Stúka við Kórinn mun skera niður framtíð HK í fótbolta! Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Hlúum að hjarta skólans skrifar Skoðun Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfa börn að borga í strætó? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Flóttamannavegurinn er loksins fundinn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Ríkisborgararéttur – sömu reglur eiga að gilda fyrir alla Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður fyrir fólk á öllum æviskeiðum Helga Björg Loftsdóttir skrifar Skoðun 3,7 milljarða skattalækkun í Hafnarfirði Orri Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnendur eru brúin – Ísland á að leiða fagmennsku, ekki draga úr henni Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Ríkisborgararéttur – sömu reglur eiga að gilda fyrir alla Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar