Viðskipti innlent

Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum

Agnar Már Másson skrifar
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm

Afkoma Arion banka síðustu þrjá mánuði fer langt fram úr vætningum og er 45 prósentum hærri en það sem spár gerðu ráð fyrir.

Arion banki sendi frá sér kauphallartilkynningu í dag um drög að uppgjöri Arion banka fyrir annan ársfjórðung 2025. Sjálft uppgjörið verður þó ekki birt fyrr en um mánaðamótin.

Samkvæmt drögunum afkoma fjórðungsins um 10 milljarðar króna, sem leiði til um 19% arðsemi eiginfjár sem tilheyri hluthöfum Arion banka.  Afkoma fjórðungsins sé um 45% yfir meðaltalsspá greiningaraðila. 

Afkoma bankans á fjórða ársfjórðungur 2024 fór einnig vel fram úr spám, þá um 28 prósentum yfir meðaltalsspá, en fram af því hafði bankin ekki staðið undir væntingum í nokkra ársfjórðunga.

Í tilkynningu Arion segir að munurinn liggi helst í hærri hreinum vaxtatekjum og virðisbreytingum af fjárfestingareignum, lægri rekstrarkostnaði samstæðunnar og jákvæðari virðisbreytingu lánabókar en greiningaraðilar gera almennt ráð fyrir.

Tekjur af kjarnastarfsemi, samanlagðar hreinar vaxtatekjur, hreinar þóknanatekjur og hreinar tekjur af tryggingastarfsemi, séu um 10% hærri en spár greiningaraðila. Uppgjörið fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2025 er enn í vinnslu og kann því að taka breytingum fram að birtingardegi þann 30. júlí, segir í tilkynningunni.

Nýlega var greint frá því að Arion og Kvika ætluðu í samrunaviðræður eftir að bæði Arion og Íslandsbanki höfðu óskað eftir slíku. Kvika hafnaði aftur á móti Íslandsbanka en gæti nú gengið í eina sæng með Arion, sem bauð betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×