Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2025 14:19 Strákarnir í tuttugu ára landsliðinu áttu ekki möguleika á móti sterku ítölsku liði. FIBA Basketball Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta féll í dag út úr sextán liða úrslitum A-deildar Evrópumótsins eftir 43 stiga tap á móti Ítölum, 101-58. Keppnin fer fram í Heraklion á Krít.
Tapið þýðir að íslensku strákarnir spila nú um níunda til sextánda sæti á mótinu. Þeir unnu lokaleik sinn í riðlinum á móti Slóveníu en náðu ekki að fylgja því eftir í dag. Friðrik Leó Curtis (ÍR, við nám í Bandaríkjunum) var atkvæðamestur í íslenska liðinu með ellefu stig, sjö fráköst, þrjár stoðsendingar og tvö varin skot. Selfyssingurinn Skarphéðinn Árni Þorbergsson skoraði níu stig og þeir Viktor Jónas Lúðvíksson (Stjarnan) og Hilmir Arnarsson (Haukar, farinn í Álftanes) voru með átta stig hvor. Íslensku strákarnir héldu í við ítalska liðið í fyrsta leikhlutanum og Ítalir voru bara tveimur stigum yfir eftir hann, 19-17. Það fór að síga á ógæfuhliðina í öðrum leikhluta þar sem ítalska liðið keyrði yfir það íslenska. Ítalía vann leikhlutann 31-11 og var því 22 stigum yfir í hálfleik, 50-28. Það munaði 29 stigum fyrir lokaleikhlutann, 71-42. Íslenska liðið átti góðan sprett í honum en þá gáfu Ítalir aftur í. Eftir það var lokaleikhlutinn aðeins formsatriði. Þjálfarar liðsins eru þeir Pétur Már Sigurðsson og Hlynur Bæringsson.
Landslið karla í handbolta Körfubolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Sjá meira