Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. júlí 2025 13:03 Kristjana Björk Barðdal og Guðmundur Birkir Pálmason stofnuðu Atelier Agency í mars 2025. Stofnendur umboðsskrifstofunnar Atelier Agency, Guðmundur Birkir„Kíró“ Pálmason og Kristjana Björk Barðdal, hafa endurskipulagt rekstur fyrirtækisins og stofnað nýju umboðsskrifstofuna og ráðgjafafyrirtækið Fura media. Um leið hættir Kristjana sem umboðsmaður Guðmundar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atelier Agency. Þar segir að Guðmundur og Kristjana hafa tekið ákvörðunina um endurskipulagninu sameiginlega en Atelier var stofnuð í mars 2025. Sjá einnig: Opnar umboðsskrifstofu með Gumma kíró Þá segir að Guðmundur muni halda áfram að leiða Atelier en að Kristjana muni einbeita sér að Fura media þar sem hún verður framkvæmdastjóri. Um leið stígur hún til hliðar sem umboðsmaður Gumma Kíró en hún hefur sinnt því starfi síðasta árið. Auk þess að vera umboðsskrifstofa mun Fura bjóða upp á ráðgjöf um það hvernig hægt sé að nýta samfélagsmiðla í öflugt markaðsstarf. Markmið fyrirtækisins er að „efla samstarf milli fyrirtækja og áhrifavalda, veita markvissa ráðgjöf, og styðja við markaðsstarf með sérfræðiþekkingu í tengslum við áhrifavalda, hlaðvörp og markaðssetningu.“ „Við höfum átt fallega vegferð saman“ „Þau Guðmundur og Kristjana leggja áherslu á að þetta skref sé tekið í vinsemd og virðingu. Þau segjast bæði hlakka til að þróa sínar leiðir áfram, hvert með sínar áherslur, og stuðla þannig að fjölbreyttri þjónustu hér á landi í þessum vaxandi geira,“ segir í tilkynningunni. Áhrifavaldarnir sem fylgja yfir til Fura media eru: Fanney Dóra, Helgi Ómars, Patrekur Jaime, Binni Glee, Rósmarý Kristín og Steffý. Hjá Atelier verða áfram áhrifavaldarnir: May, Nadía Sif, Rúnar Bjarna, Kara Lind og Lilja Marín. „Við höfum átt fallega vegferð saman og kaflaskiptin núna eru til marks um traust, vöxt og skýran fókus,” segir Guðmundur.
Samfélagsmiðlar Vistaskipti Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira