Innlent

Lét högg og spörk dynja á for­eldrunum í tíu klukku­stundir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Faðir Margrétar var lagður inn á Landspítalann nokkrum dögum fyrir árásina örlagaríku. Þar dvaldi hann í tvo daga eftir enn eina árás dóttur sinnar.
Faðir Margrétar var lagður inn á Landspítalann nokkrum dögum fyrir árásina örlagaríku. Þar dvaldi hann í tvo daga eftir enn eina árás dóttur sinnar. Vísir/ArnarHalldórs

Kona sem ákærð er fyrir að verða föður sínum að bana og gera tilraun til að bana móður sinni er sökuð um að hafa mánuðina á undan beitt þau margsinnis ofbeldi. Talið er að árásin nóttina örlagaríku hafi staðið yfir í um tíu klukkustundir. Faðirinn hafði nokkrum dögum fyrr verið lagður inn á sjúkrahús. Sonur hins látna krefst þess að hálfsystir hans verði svipt erfðarétti.

Það var að morgni föstudagsins 11. apríl sem Neyðarlínunni barst símtal frá heimili hér í Súlunesi í Garðabæ. Áttræður karlmaður hafði misst meðvitund á heimili þeirra að loknu margra klukkutíma löngu ofbeldi dóttur sinnar. Maðurinn lést, kona hans var lögð með mikla áverka inn á Landspítalann og dóttir þeirra handtekin.

Konan, hin 28 ára gamla Margrét Halla Hansdóttir Löf, hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan en var í gær ákærð fyrir að verða föður sínum að bana, gera tilraun til að bana móður sinni og fyrir stórfellt brot í nánu sambandi. Miklu og endurteknu ofbeldi mánuðina á undan er lýst í ákærunni á hendur Margréti. 

Lá inni á sjúkrahúsi nokkrum dögum fyrr

Bæði er um að ræða andlegt ofbeldi þar sem hún fyrirskipaði foreldrum sínum að sitja eða standa á víxl og bannaði þeim að tala við sig á meðan hún beitti hitt foreldrið líkamlegu ofbeldi. Það fólst bæði í höggum í höfuð, andlit og víðar um líkamann en líka spörkum sem leiddu til blæðinga í eyra, glóðurauga og marbletta.

Samkvæmt ákærunni þurfti faðir Margrétar að leita sér læknisaðstoðar í vel á annan tug skipta mánuðina fyrir árásina. Móðir Margrétar var sömuleiðis fastagestur á læknastofum af sömu ástæðu. 

Aðeins nokkrum dögum fyrir árásina örlagaríku þurfti faðirinn að leggjast inn á spítala í tvo daga vegna sára sem hann hlaut eftir enn eina árás dóttur sinnar.

Stóð yfir í tíu klukkustundir

Talið er að ofbeldi Margrétar gagnvart foreldrum sínum daginn afdrifaríku hafi staðið yfir í um tíu klukkustundir. Þá á hún að hafa látið hnefahöggin og spörkin dynja á foreldrum sínum. Það var svo á flótta af heimilinu á sjöunda tímanum um morguninn sem faðir hennar örmagnaðist í forstofunni, féll niður og lést skömmu síðar. Hann var með fjölmörg brotin rifbein og miklar innvortis blæðingar auk áverka út um allan líkama í formi mara, marbletta, skráma og sára.

Móðir Margrétar var lögð inn á Landspítala nefbrotin, með blæðingu í auga, skurð á eyra og marbletti um allan líkama auk klórfara.

Málið fer fyrir Héraðsdóm Reykjaness í haust. Sonur hins látna og hálfbróðir Margrétar krefur hana um sex milljónir króna í miskabætur. Þá gerir hann jafnframt þá kröfu að dómurinn svipti hana rétti til arfs eftir föður sinn enda hafi hún ráðið honum bana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×