Leik lokið: FH - ÍBV 1-1 | Alvöru dramatík í uppbótartíma Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 24. ágúst 2025 17:16 Úr leiknum í kvöld Vísir/Viktor Freyr FH og ÍBV mættust í Kaplakrika í kvöld þar sem boðið var upp á mikla dramatík og jöfnunarmark á elleftu stundu. Leikurinn var frekar bragðdaufur lengi framan af og leit allt út fyrir að honum myndi ljúka með markalausu jafntefli en Hermann Þór Ragnarsson kom ÍBV 0-1 yfir með fyrsta skoti Eyjamanna á rammann á 88. mínútu. Fjórum mínútum var bætt við og leikurinn að fjara út þegar heimamenn fengu aukaspyrnu með 95 mínútur á klukkunni. Kjartan Kári Halldórsson tók spyrnuna, sem virtist hafa viðkomu í varnarmanni og boltinn söng í netinu. Niðurstaðan 1-1 jafntefli sem verður sennilega að teljast sanngjarnt þrátt fyrir að Eyjamenn séu eflaust drullusvekktir með að hafa glutrað þessu frá sér í lokin. Nánari umfjöllun og viðtöl á Vísi síðar í kvöld. Besta deild karla FH ÍBV Fótbolti Íslenski boltinn