Ákærður fyrir stunguárás á Seltjarnarnesi Jón Þór Stefánsson skrifar 8. október 2025 08:01 Meintar árásir eru sagðar hafa átt sér stað við íþróttahús á Seltjarnarnesi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að stinga mann við íþróttahús á Seltjarnarnesi og fyrir að ráðast á annan mann á sama stað skömmu áður. Atvikin sem málið varðar munu hafa átt sér stað aðfaranótt sunnudagsins 29. ágúst 2021.
Í ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum er manninum gefið að sök að hafa ráðist á mann með því að slá hann með krepptum hnefa í höfuð. Sá sem varð fyrir árásinni hafi fyrir vikið fallið aftur fyrir sig í götuna, og hlotið beinbrot á hendi og aðra minni áverka. Í kjölfarið er árásarmaðurinn sagður hafa slegið mann, annan en þann sem varð fyrir fyrri árásinni, hnefahöggi í höfuð og svo stungið hann einu sinni með hnífi í vinstri síðu. Fyrir vikið hafi sá sem varð fyrir árásinni hlotið „langan og djúpan gapandi skurð á bakvegg brjóstkassa með seytlandi blæðingu út frá skornum bakbreiðavöðva og einhliða lungnamar.“ Þess má geta að fyrir þessa síðari árás er maðurinn ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, en ekki tilraun til manndráps, líkt og stundum þegar um meinta stunguárás er að ræða. Þess er krafist, fyrir hönd beggja brotaþolanna, að árásarmaðurinn greiði þeim hvorum um sig 2,6 milljónir króna auk vaxta.
Dómsmál Lögreglumál Seltjarnarnes Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira