Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Kristján Már Unnarsson skrifar 15. október 2025 22:00 Tenging Sundabrautar við Grafarvogshverfi yrði á svæði gömlu öskuhauganna í Gufunesi. Þar lægi Sundabrautin undir hringtorgi. Fjær er brúin yfir Kleppsvík, Sundabrúin, sýnd sem hábrú. Efla Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri.
Langstærsti og dýrasti verkþátturinn verður þverun Kleppsvíkur, milli Sundahafnar og Gufuness, hvort sem hún verður með jarðgöngum eða brú. Sjá má umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum á framfæri í skipulagsgátt. Sundabrú séð úr Elliðavogi. Hún yrði lengsta brú Íslands, nærri 1,2 kílómetra löng. Hér er hún sýnd sem hábrú.Efla Í matsskýrslu Vegagerðarinnar er sýnd bæði lágbrú frá Holtagörðum en einnig hábrú til að skip gætu siglt undir, eins og lýst er hér í kvöldfréttum Sýnar: Þessi nærri tólfhundruð metra langa brú yrði sú lengsta á Íslandi. Miðað er við að hábrú milli Holtagarða og Gufuness yrði þrjátíu metra há. Dæmi um útfærslu gatnamóta Sæbrautar og Holtavegar með hábrú yfir Kleppsvík.Efla Með brúarleið myndi Sundabraut tengjast gatnakerfi borgarinnar á mótum Sæbrautar og Holtavegar. Svona gæti jarðgangamunni litið út suðaustan Laugarness.Efla Ef jarðgöng yrðu valin myndi gangamunni suðaustan Laugarness líta svona út en gangamunni nær Holtagörðum myndi tengjast inn í Sæbrautarstokk og sæist ekki á yfirborði. Jarðgöng myndu útiloka hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur. Tenging Sundabrautar við Grafarvog. Fjær er Sundabrú sýnd sem hábrú.Efla Tenging við Grafarvogshverfið er sýnd með hringtorgi á svæði gömlu öskuhauganna í Gufunesi. Veglínan um Gufunes.Efla Til norðurs frá Gufuneshöfða lægi Sundabraut yfir gömlu öskuhaugana og síðan áfram til norðurs til Geldinganess. Veglínan yfir Eiðsvík milli Gufuness og Geldinganess.Efla Tengingin yfir á Geldinganes væri á grjótfyllingu yfir Eiðsvíkina með stuttum brúm. Þar sést til hægri hvernig vegurinn yrði sprengdur niður í gegnum bunguna á Geldinganesi. Veglínan yfir Leiruvog milli Geldinganess og Álfsness.Efla Frá Geldinganesi yfir á Gunnunes og Álfsnes yrði Sundabrautin bæði á grjótfyllingu yfir Leiruvog en einnig með nokkuð stórri brú og annarri minni. Veglínan um Álfsnes. Fjær er Geldinganes. Hér sést vel það mikla byggingarland sem verður aðgengilegra með Sundabraut.Efla Þegar komið er yfir á Álfsnes sjá hönnuðir fyrir sér að svona myndi brautin líta út þar. Þarna sést líka dæmi um byggingarlandið sem opnast með Sundabraut bæði á Álfsnesi og í Víðinesi sem og á Geldinganesi. Séð yfir KollafjörðEfla Nyrsti áfanginn yrði svo þvert yfir Kollafjörð, milli Álfsness og Kjalarness. Þar yrði að mestu grjótfylling með tveimur samsíða brúm í miðju. Horft frá bílastæðinu við Esjurætur.Efla Eitt sjónarhornið í matsskýrslunni er frá bílastæðinu við Esjurætur. Þar sjáum við betur grjótgarðinn og brúaropið í miðju þegar horft er út Kollafjörð. Veglína Sundabrautar, samkvæmt umhverfismatsskýrslu. Við þverun Kleppsvíkur er boðið upp á tvo aðalvalkosti, jarðgöng eða hábrú.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Vegagerðin vonast til að hægt verði að bjóða verkið út á næsta ári og ljúka samningum síðla árs 2027. Framkvæmdir gætu þá hafist eftir tvö ár. Verktími yrði sennilega fimm ár þannig að Sundabraut gæti öll verið tilbúin árið 2032. Svona gæti 30 metra há Sundabrú litið út.Efla Það færi eftir útfærslu hvað Sundabraut myndi kosta. Brúarleiðin er talin kosta vel á annað hundrað milljarða króna. Jarðgöng eru talin 10 til 25 milljörðum dýrari. En hvor leiðin sem yrði valin yrði þetta dýrasta einstaka vegaframkvæmd Íslandssögunnar. Séð yfir Sundabraut ofan af Úlfarsfelli.Efla Fjögur ár eru frá því samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu viljayfirlýsingu sem kom verkefninu í núverandi farveg:
Sundabraut Vegagerð Reykjavík Vegtollar Skipulag Samgöngur Umhverfismál Mosfellsbær Tengdar fréttir Búið að birta umhverfismatsskýrslu fyrir Sundabraut Við lagningu Sundabrautar eru brúarkostir töluvert hagkvæmari í framkvæmd og rekstri en göng og uppfylla markmið framkvæmdarinnar betur. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýútkominni umhverfismatsskýrslu vegna Sundabrautar. Vegagerðin og Reykjavíkurborg standa samanlagt að sex kynningarfundum vegna verkefnisins næstu vikurnar. 13. október 2025 14:29 Styttist í stóra ákvörðun vegna Sundabrautar Formaður verkefnastjórnar hjá Vegagerðinni segir eitt af markmiðum Sundabrautar að auka ekki umferð í íbúagötum. Von er á umhverfismati vegna Sundabrautar á næstu dögum og mun Reykjavíkurborg í kjölfarið auglýsa tillögu að breyttu aðalskipulagi þar sem fram kemur hvort göng eða brú yfir Kleppsvík verður fyrir valinu. 13. október 2025 12:15 Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Vegagerðin telur að markmið um bættar samgöngur fyrir alla ferðamáta með lagningu Sundabrautar náist að mestu með því að byggja brú yfir Kleppsvík, jarðgöng nái síður að uppfylla þau markmið, þau útiloki samgöngumöguleika hjólandi og gangandi. Í undirbúningi séu opnir kynningarfundir vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu um brautina, sem von er á í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku. 9. október 2025 15:48 Yfirlýsing um Sundabraut: „Má segja að framkvæmdin sé hafin þótt engin sjáist grafan“ Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast eftir fimm ár og brautin að vera tilbúin eftir tíu ár, samkvæmt yfirlýsingu sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu á Vogabakka í Sundahöfn síðdegis. Leggja á brautina alla leið í einni samfelldri framkvæmd og efna til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. 6. júlí 2021 22:15 Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Skafið og saltað Veður Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Fleiri fréttir Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sjá meira
Búið að birta umhverfismatsskýrslu fyrir Sundabraut Við lagningu Sundabrautar eru brúarkostir töluvert hagkvæmari í framkvæmd og rekstri en göng og uppfylla markmið framkvæmdarinnar betur. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýútkominni umhverfismatsskýrslu vegna Sundabrautar. Vegagerðin og Reykjavíkurborg standa samanlagt að sex kynningarfundum vegna verkefnisins næstu vikurnar. 13. október 2025 14:29
Styttist í stóra ákvörðun vegna Sundabrautar Formaður verkefnastjórnar hjá Vegagerðinni segir eitt af markmiðum Sundabrautar að auka ekki umferð í íbúagötum. Von er á umhverfismati vegna Sundabrautar á næstu dögum og mun Reykjavíkurborg í kjölfarið auglýsa tillögu að breyttu aðalskipulagi þar sem fram kemur hvort göng eða brú yfir Kleppsvík verður fyrir valinu. 13. október 2025 12:15
Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Vegagerðin telur að markmið um bættar samgöngur fyrir alla ferðamáta með lagningu Sundabrautar náist að mestu með því að byggja brú yfir Kleppsvík, jarðgöng nái síður að uppfylla þau markmið, þau útiloki samgöngumöguleika hjólandi og gangandi. Í undirbúningi séu opnir kynningarfundir vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu um brautina, sem von er á í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku. 9. október 2025 15:48
Yfirlýsing um Sundabraut: „Má segja að framkvæmdin sé hafin þótt engin sjáist grafan“ Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast eftir fimm ár og brautin að vera tilbúin eftir tíu ár, samkvæmt yfirlýsingu sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu á Vogabakka í Sundahöfn síðdegis. Leggja á brautina alla leið í einni samfelldri framkvæmd og efna til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. 6. júlí 2021 22:15