Handtökur í NBA: Lak upplýsingum um meiðsli James og bað um bita af kökunni Sindri Sverrisson skrifar 24. október 2025 08:32 Damon Jones (fyrir miðju) var á sínum tíma liðsfélagi og svo aðstoðarþjálfari LeBron James hjá Cleveland Cavaliers en þeir voru svo hjá LA Lakers þegar Jones lak upplýsingum um meiðsli James. Getty/Carlos Avila Gonzalez Damon Jones, fyrrverandi NBA-leikmaður til ellefu ára, er í hópi þeirra 34 manna sem bandaríska alríkislögreglan, FBI, handtók eftir rannsókn á íþróttaveðmálum og pókerstarfsemi tengdri mafíunni.
Eins og fjallað var um á Vísi í gær voru Terry Rozier, leikmaður Miami Heat, og Cuauncey Billups, þjálfari Portland Trail Blazers, einnig í hópi hinna handteknu. Rozier er grunaður um að hagræða úrslitum en Billups um þátt í ólöglegri pókerstarfsemi. Damon Jones er svo grunaður um að hafa lekið upplýsingum um meiðsli LeBron James, fyrir leik LA Lakers við Milwaukee Bucks þann 9. febrúar 2023. Jones var þá óopinber og ólaunaður starfsmaður í teymi Lakers sem lék þá undir stjórn þjálfarans Darvin Ham. Honum var boðið að vera í teyminu eftir að hafa verið viðstaddur á æfingum James sumarið 2022, á undirbúningstímabilinu. Samkvæmt heimildum ESPN var James ekki kunnugt um þátttöku Jones í veðmálastarfsemi og liggur hann ekki undir neinum grun. Jones mun hafa látið vita af meiðslum James og í skilaboðum sagt samverkamanni sínum að „veðja stórt á Milwaukee í kvöld“. James var nýbúinn að bæta stigamet Kareem Abdul-Jabbar, þann 7. febrúar 2023, en missti svo af leiknum við Milwaukee vegna meiðsla. Lakers töpuðu leiknum, 115-106. Jones er einnig sagður hafa sent skilaboðin: „Veðjaðu nóg svo að Djones fái núna líka að borða!!!“ Þá er Jones sakaður um að hafa einnig lekið upplýsingum í tengslum við leik Lakers við Oklahoma City Thunder 15. janúar 2024.
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira