Real Madrid vill stórar skaðabætur frá UEFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2025 10:00 Kylian Mbappe fagnar einu af mörkum sínum fyrir Real Madrid en félagið vill sækja pening í sjóði UEFA í formi skaðabóta. Getty/Diego Souto Spænska félagið Real Madrid mun krefjast umtalsverðra skaðabóta frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, eftir að evrópska knattspyrnusambandið tapaði áfrýjun sinni í tengslum við Ofurdeildina.
Úrskurður frá héraðsdómstóli Madrídar á miðvikudag staðfesti úrskurð frá maí 2024. Í þeim úrskurði kom fram að UEFA, spænska knattspyrnusambandið og La Liga hefðu iðkað samkeppnishamlandi hegðun og misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að banna félögum að ganga í Ofurdeildina á sínum tíma. Svar UEFA-manna er að nýjasti dómurinn staðfesti ekki verkefnið um aðild að Ofurdeildinni og grafi undan núverandi leyfisreglum UEFA. Real Madrid var eitt af tólf evrópskum félögum, þar á meðal sex liðum í ensku úrvalsdeildinni, sem ætluðu að ganga í Ofurdeildina árið 2021 en hættu flest við vegna þrýstings frá stjórnvöldum og stuðningsmönnum félaganna. Í öðrum dómi úrskurðaði Evrópudómstóllinn í desember 2023 að það væri ólöglegt að banna félögum að ganga í Ofurdeildina, sem leiddi til þess að UEFA uppfærði reglur sínar. „Real Madrid fagnar ákvörðun héraðsdómstólsins í Madríd um að hafna áfrýjunum sem UEFA, RFEF og La Liga höfðuðu, og staðfestir að UEFA, í máli Ofurdeildarinnar, hafi alvarlega brotið gegn samkeppnisreglum Evrópusambandsins í samræmi við úrskurð dómstólsins og misnotað markaðsráðandi stöðu sína,“ sagði í yfirlýsingu frá fimmtánföldum Evrópumeisturunum. „Þessi úrskurður ryður brautina fyrir félagið til að krefjast verulegra skaðabóta frá UEFA.“
Spænski boltinn UEFA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Milner hættur í fótbolta Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Sjá meira