„Mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 3. desember 2025 13:37 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir Fjármálastofnanir þurfa nú við útreikning á greiðslubyrði að líta til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við kaup á íbúðarhúsnæði, jafnvel þó þeim sé frestað. Fjármálastöðuleikanefnd er með þessu að bregðast við útspili margra verktakafyrirtækja sem bjóða nú upp á nýja fjármögnunarleið. Hún er áhættusamari en almenn íbúðakaup að mati Seðlabankastjóra.
Á undanförnum vikum hefur verið fjallað um fjölda sjóða sem ætla sér að fjárfesta með einstaklingum í íbúðahúsnæði. Þetta sé gert til að liðka fyrir lægð í sölu nýbygginga á fasteignamarkaði. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlbankans kynnti yfirlýsingu sína í dag þar sem reynt er að sporna við þessari þróun. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir mikilvægt að tekið sé tillit til þessarar nýju leiðar við útreikning á greiðslubyrði. „Þessi nýja leið við fasteignakaup felur að einhverju marki í sér miklu lægra eiginfjárframlag kaupanda og hægari eignamyndun. Við viljum að þetta sé rétt fært til bókar í lánþegaskilyrðum,“ segir Ásgeir. Aðspurður um hvort þessi nýju skilyrði Seðlabankans muni hafa þau áhrif að færri kjósi fjármögnunarleiðir verktakafyrirtækja og sjóða svarar Ásgeir: „Ég held það já. Ég vil líka leggja áherslu á að þetta eru flóknir samningar, skilmálarnir eru í tugum blaðsíðna. Það er mjög mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er,“ segir Ásgeir. Fréttastofa hefur heimild fyrir því að einn slíkur samningur hafi verið alls 65 blaðsíður. Ásgeir segir að það sé í höndum Fjármálaeftirlitsins að hafa eftirlit með því að lögum og reglum sem fylgt í slíkum samningum. „Það sem við erum að reyna að koma í veg fyrir er að þetta myndi kerfislega áhættu. Þannig að mikið af fólki lendi með neikvætt eiginfé eða eitthvað slíkt eftir einhvern ákveðinn tíma,“ segir Ásgeir. Hann tekur fyrir að verið sé að banna nýju fjármögnunarleiðirnar en bankinn hafi áhyggjur. „Við óttumst að með því að fresta greiðslum séð að einhverju leyti verið að fara á skjön við þau lánþegarskilyrði sem við erum með og við því er verið að bregðast,“ segir Ásgeir.
Seðlabankinn Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Lánamál Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira