Fanndís leggur skóna á hilluna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2025 13:11 Fanndís Friðriksdóttir fagnar marki sínu á EM 2017 sem er eitt flottasta mark sem Ísland hefur skorað á stórmóti. Vísir/Getty Fanndís Friðriksdóttir gaf það út á samfélagsmiðlum sínum í dag að hún hefði ákveðið að setja fótboltaskóna sína upp á hillu.
Vitað var að Fanndís yrði ekki áfram hjá Val en nú er ljóst að hún fer ekki í annað félag heldur segir þetta gott. „Takk fyrir mig fótbolti. Sigrar-Töp og allt það en það sem situr eftir er allt fólkið. Þakklát og stolt af ferlinum, tek frelsinu fagnandi,“ skrifaði Fanndís á samfélagsmiðla. Fanndís hefur verið lengi í hópi bestu knattspyrnukvenna landsins og er aðeins ein af þrettán sem hefur náð að spila hundrað A-landsleiki fyrir Ísland. Fanndís skoraði 17 mörk í 110 landsleikjum á ferlinum. Hún er sú níunda leikjahæsta og sú níunda markahæsta í sögunni. Fanndís lék síðustu sjö ár tímabilsins í Val, alls sex tímabil en hún var í barneignafríi eitt sumarið. Lengst af lék hún þó með Breiðabliki auk þess að spila sem atvinnumaður í Noregi, Frakklandi og í Ástralíu. Fanndís var með 8 mörk í 23 leikjum í Bestu deild kvenna síðasta sumar. Hún endar því ferilinn sinn með 129 mörk í 278 leikjum í efstu deild. Hún varð fimm sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari á ferlinum. Fanndís er í ellefta sæti yfir markahæstu leikmenn efstu deildar kvenna frá upphafi en hún er sú þriðja markahæsta hjá Blikum í efstu deild. View this post on Instagram A post shared by Fanndís Friðriksdóttir (@fanndis90)
Landslið kvenna í fótbolta Besta deild kvenna Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira