„Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2025 17:17 Hugo Ekitike fagnar öðru marka sinna í dag með liðsfélögunum Ibrahima Konate og Virgil van Dijk. EPA/ADAM VAUGHAN Hugo Ekitike var aðalmaðurinn í langþráðum sigri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag en franski framherjinn skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri.
Ekitike skoraði fyrra markið eftir aðeins 46 sekúndur en það seinna með skalla eftir hornspyrnu Mo Salah í seinni hálfleik. Frakkinn var kátur í leikslok. „Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið fullkomið því ég veit að ég hefði getað skorað mun fleiri mörk í dag. Það mikilvægasta var að vinna fyrir framan stuðningsmennina okkar. Þetta var góður dagur í vinnunni,“ sagði Hugo Ekitike. Spyrillinn fékk hann til að lýsa fyrra marki sínu sem var það fljótasta sem hefur verið skorað í leik í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. „Boltinn kom hratt. Ég reyndi að vera tilbúinn. Maður býst ekki við að skora á fyrstu mínútu og ég reyni alltaf að vera viðbúinn,“ sagði Ekitike. Hann hrósaði Salah fyrir stoðsendinguna í seinna markinu. „Hann gaf mér frábæran bolta, ég þurfti bara að vera á réttum stað. Það var auðvelt að klára færið,“ sagði Ekitike. „Ég var að leita að þrennunni en hún kemur bara næst. Þetta var gott, tvö mörk. Við reynum að halda saman og vinna saman. Þetta var ekki auðvelt í dag. Við þurftum að halda þétt saman og standa saman. Mér finnst við hafa átt þetta skilið. Við áttum frábæra viku og höldum bara áfram,“ sagði Ekitike. „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki. Við erum Liverpool, við þurfum að vinna,“ sagði Ekitike.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Arnar og Andrea sigurvegarar Puffin-hlaupsins Sport Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur Íslenski boltinn Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik Handbolti Alex Zanardi látinn Sport Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Enski boltinn „Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Handbolti „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Körfubolti Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Sjá meira