Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2025 21:56 Rodrygo fagnar sigurmarki sínu fyrir Real Madrid í kvöld en myndatökumaðurinn er kominn langt inn á völlinn. Getty/ Juan Manuel Serrano Arce Real Madrid minnkaði forskot Barcelona á toppnum í fjögur stig eftir 2-1 útisigur á Deportivo Alaves í spænsku deildinni í kvöld.
Þetta var lífsnauðsynlegur sigur fyrir Real sem hefur gengið illa að undanförnu og var aðeins með einn sigur í síðustu fimm deildarleikjum. Sigurinn var þó ekki mjög sannfærandi enda heimamenn bæði meira með boltann og með hærra xG. Brasilíumaðurinn Rodrygo skoraði sigurmarkið fjórtán mínútum fyrir leikslok. Landi hans Vinicius Junior átti mikinn þátt í þessu mikilvæga marki. Kylian Mbappé hafði komið Real í 1-0 á 24. mínútu eftir sendingu frá Jude Bellingham. Mbappé var þarna að skora sitt sautjánda deildarmark á leiktíðinni. Bellingham hélt að hann hefði skorað stuttu síðar en það mark var dæmt af eftir að sá enski handlék boltann áður en hann skoraði markið. Varamaðurinn Carlos Vicente jafnaði fyrir heimamenn á 69. mínútu en það tók Real Madrid aðeins sjö mínútur að komast aftur yfir. Pressan var mikil á Xabi Alonso, þjálfara Real, fyrir leikinn en þessi útisigur ætti að gefa honum smá vinnufrið. Næsti leikur er strax á miðvikudaginn á móti Talavera í bikarnum.
Spænski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira