Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Árni Sæberg skrifar 22. desember 2025 14:05 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, og Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður samtakanna. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur sýknað Landsbankann af öllum kröfum í tveimur málum sem neytendur höfðuðu á hendur bankanum vegna tiltekinna skilmála í lánasamningum. Hæstiréttur taldi skilmálana ólögmæta en að neytendur hefðu ekki orðið fyrir tjóni. „Í fljótu bragði er ég ósammála þessu,“ segir formaður Neytendasamtakanna.
Dómar þess efnis voru kveðnir upp klukkan 14 en hafa ekki verið birtir. Forsendur þeirra liggja því ekki fyrir að svo stöddu. Um síðustu tvö málin af hinum svokölluðu Vaxtamálum var að ræða. „Ég verð að segja að ég er hlessa. Það er ánægjulegt að skilmálarnir séu dæmdir ólögmætir en ég er hissa að það sé ekki talið vera neitt tjón,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna í samtali við fréttastofu. Hæstiréttur hafði áður ógilt skilmála Íslandsbanka í samningi um óverðtryggt lán á breytilegum vöxtum, en sýknað af fjárkröfu, og sýknað Arion banka af öllum kröfum í tengslum við skilmála verðtryggðs láns. Fór beint í Hæstarétt Aðalmeðferð í þriðja málinu fór fram þann 3. desember. Það varðaði óverðtryggt viðbótarlán með breytilegum vöxtum og í því er deilt um sambærilega skilmála og í máli neytenda á hendur Íslandsbanka. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Landsbankanum í vil í mars síðastliðnum, einkum með vísan til þess að vextirnir sem lántakendur greiddu voru aldrei hærri en upphafsvextir miðað við lánasamninginn. Þannig nýtti bankinn sér aldrei umdeilda skilmála til þess að hækka vextina. Hæstiréttur veitti lántakendunum áfrýjunarleyfi til réttarins í byrjun júní, án þess að málið væri tekið fyrir í Landsrétti. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms. Fallist á fjárkröfu í héraði Loks var aðalmeðferð í máli tveggja lántakenda á hendur Landsbankanum á dagskrá þann 8. desember. Í því er deilt um skilmála tveggja verðtryggða skuldabréfa sem gefin voru út árið 2006 til forvera Landsbankans, til þess að gera upp skuld vegna yfirdráttar. Landsbankinn var í héraði dæmdur til að endurgreiða lántakendum rúmlega 100 þúsund krónur hvorum um sig en Landsréttur sýknaði bankann. Rétturinn taldi það ekki hafa verið ósanngjarnt af bankanum að bera fyrir sig skilmála um vaxtabreytingar, þar sem vextir hefði iðullega verið lægri en upphafsvextir. Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar. Athygli vekur að aðeins tvær vikur eru frá því að síðasta málið var flutt í Hæstarétti en rétturinn hefur fjórar vikur frá aðalmeðferð til þess að kveða upp dóm.
Vaxtamálið Fjármálafyrirtæki Fjármál heimilisins Landsbankinn Dómsmál Neytendur Tengdar fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Hæstiréttur mun kveða upp seinni tvo dómana í Vaxtamálinu svokallaða á mánudag. Rétturinn hefur frest til annars vegar gamlársdags og hins vegar 5. janúar til þess að kveða upp dóma í málunum tveimur. 19. desember 2025 15:26 Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Hæstiréttur kveður upp dóm sinn í máli tveggja lántakenda á hendur Arion banka, vegna skilmála í lánasamningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum, á morgun. 9. desember 2025 15:04 „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Formaður neytendasamtakanna segir sýknu Arion banka af öllum kröfum neytenda í einu vaxtamálanna svokölluðu vera vonbrigði. Málið hafi þó takmarkað fordæmisgildi þar sem það hafi varðað lánasamning sem gerður var fyrir gildistöku núgildandi laga um neytendalán. 10. desember 2025 15:20 Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Sjá meira
Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Hæstiréttur mun kveða upp seinni tvo dómana í Vaxtamálinu svokallaða á mánudag. Rétturinn hefur frest til annars vegar gamlársdags og hins vegar 5. janúar til þess að kveða upp dóma í málunum tveimur. 19. desember 2025 15:26
Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Hæstiréttur kveður upp dóm sinn í máli tveggja lántakenda á hendur Arion banka, vegna skilmála í lánasamningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum, á morgun. 9. desember 2025 15:04
„Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Formaður neytendasamtakanna segir sýknu Arion banka af öllum kröfum neytenda í einu vaxtamálanna svokölluðu vera vonbrigði. Málið hafi þó takmarkað fordæmisgildi þar sem það hafi varðað lánasamning sem gerður var fyrir gildistöku núgildandi laga um neytendalán. 10. desember 2025 15:20