Skapari Call of Duty lést í bílslysi Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2025 07:53 Vince Zampella á viðburði í Los Angeles fyrr í mánuðinum. EPA Vince Zampella, einn skapara hinna vinsælu Call of Duty-tölvuleikja, er látinn eftir að hafa lent í bílslysi í Kaliforníu í Bandaríkjunum á sunnudag. Hann varð 55 ára.
Tölvuleikjafyrirtækið Electronic Arts, sem á Respawn Entertainment sem Zampalla stofnaði, staðfesti andlát Zampella. BBC segir frá því að Zampella hafi verið að keyra í Ferrari-bíl ásamt öðrum þegar bíllinn lenti á steyputálma og varð alelda á hraðbraut í Los Angeles. Fram kemur að farþeginn í bílnum hafi kastast úr bílnum en að bílstjórinn hafi verið fastur en óljóst er hvort að Zampella hafi ekið bílnum eða verið farþegi. Báðir létust í slysinu. Zampella skapaði tölvuleikinn Call of Duty ásamt samstarfsmönnum sínum til fjölda ára, þeim Jason West og Grant Collier, árið 2003. Leikurinn, sem sækir innblástur í atburði í seinni heimsstyrjöldinni, hefur selst í rúmlega 500 milljónum eintaka og er hann einn tekjuhæsti tölvuleikur sögunnar. Zampella átti einnig þátt í að skapa aðra leiki á borð við Medal of Honor, Titanfall og Apex Legend. Þeir Zampella og West voru reknir frá Activision, sem gefur út Call of Duty-leikina, árið 2010. Tóku þá við deilur sem rötuðu fyrir dómstóla en sátt náðist árið 2012. Zampella starfaði hjá Electronic Arts þar sem hann vann að leiknum Battlefield 6, sem margir líta á sem að sé í beinni samkeppni við Call of Duty.
Andlát Leikjavísir Bandaríkin Rafíþróttir Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira