Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2025 21:45 Danny Welbeck skoraði úr einni vítaspyrnu gegn West Ham United en klúðraði annarri. getty/Jordan Pettitt Þrjár vítaspyrnur voru dæmdar í 2-2 jafntefli West Ham United og Brighton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Newcastle United og Everton unnu sína leiki.
Jarrod Bowen, fyrirliði West Ham, kom sínum mönnum yfir á 10. mínútu eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Brighton. Danny Welbeck jafnaði úr víti á 32. mínútu og skömmu síðar fengu gestirnir annað víti. Welbeck fór aftur á punktinn en vippaði boltanum í slána. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk West Ham víti eftir að Lewis Dunk handlék boltann innan teigs. Lucas Paquetá tók spyrnuna og skoraði af öryggi. Markið dugði West Ham þó ekki til sigursins sem liðið þurfti svo mikið á að halda því Joël Veltman jafnaði á 61. mínútu. Lokatölur 2-2. West Ham er í 18. sæti deildarinnar með fjórtán stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Brighton, sem hefur ekki unnið í fimm leikjum í röð, er í 14. sætinu með 25 stig. Yoane Wissa virðist vera búinn að finna fjölina sína eftir langa fjarveru vegna meiðsla.getty/Lee Parker Newcastle fékk sannkallaða draumabyrjun í 1-3 sigri á Burnley á Turf Moor. Joelinton kom gestunum yfir á 2. mínútu og fimm mínútum síðar jók Yoane Wissa muninn í 0-2. Josh Laurent kom Burnley inn í leikinn með marki á 23. mínútu en nær komust heimamenn ekki. Í uppbótartíma skoraði Bruno Guimaraes svo þriðja mark Newcastle eftir slæm mistök Martin Dúbravka í marki Burnley sem er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með tólf stig. Newcastle er í 10. sætinu með 26 stig. Markaskorarar Everton Thierno Barry og James Garner fallast í faðma.getty/Shaun Botterill Everton lyfti sér upp í 8. sæti deildarinnar með 0-2 sigri á Nottingham Forest á City Ground. James Garner og Thierno Barry skoruðu mörk Everton sem var án margra lykilmanna í kvöld. Þetta var þriðja tap Forest í röð en liðið er í 17. sæti deildarinnar með átján stig, fjórum stigum frá fallsæti.
Enski boltinn West Ham United Brighton & Hove Albion Burnley FC Newcastle United Nottingham Forest Everton FC Mest lesið Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Íslenski boltinn Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Hvað er Onana að gera? Fótbolti Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Fótbolti „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Fótbolti Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Fótbolti Fleiri fréttir Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Sjá meira