Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. janúar 2026 07:14 Úkraínskur hermaður við æfingar. Getty/Anadolu/Diego Herrera Carcedo Öryggis- og hermálayfirvöld í Úkraínu segjast ekki aðeins hafa sett á svið aftöku Rússa sem stjórnvöld í Rússlandi eru sögð hafa viljað dauðan, heldur einnig hirt verðlaunaféð sem hafi verið sett honum til höfuðs.
Frá þessu var greint í gær en maðurinn sem um ræðir heitir Denis Kapustin, einnig þekktur undir nafninu Denis Nikitin, og er sagður fara fyrir sjálfboðaliðasveit Rússa sem berjast fyrir Úkraínu og svokallaðri Timur-sérsveit. Tilkynnt hafði verið á laugardag að Kapustin hefði verið drepinn en í gær birtist hann á myndskeiði ásamt Kyrylo Budanov, yfirmanni leyniþjónustu úkraínska hersins. Þá var greint frá því að yfirvöld í Rússlandi hefðu fyrirskipað að ráða ætti Kapustin af dögum en sviðsetning morðsins hefði miðað að því að afhjúpa þá sem höfðu staðið að fyrirskipuninni og þá sem áttu að framfylgja henni. Að sögn Budanov tókst einnig að innheimta verðlaunaféð sem hafði verið heitið fyrir morðið á Kapustin; 500 þúsundi dali. Samkvæmt AFP fréttaveitunni er Kapustin alls enginn engill. Er hann meðal annars þekktur fyrir tengsl við öfga hægri öfl og ofbeldi á knattspyrnuleikjum. Þá eru sumir hermanna hans sagðir aðhyllast ný-nasisma.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Sjá meira