Nýtti sér leik sinn í Dansar við úlfa við að mynda sértrúarsöfnuð Samúel Karl Ólason skrifar 6. janúar 2026 15:17 Chasing Horse í dómsal í Nevada árið 2023. AP/Ty O'Neil Nathan Chasing Horse, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið hinn unga Smiles A Lot í kvikmyndinni Dansar við úlfa, frá 1990, var fjarlægður úr dómsal í Nevada í gær. Þar á að rétta yfir honum fyrir ýmis kynferðisbrot gegn bæði konum og stúlkum í gegnum árin en hann var með læti í dómsal og krafðist þess að fá að reka eigin lögmann, viku áður en réttarhöldin gegn honum eiga að hefjast.
Chasing Horse var árið 2024 ákærður í 21 lið og þar á meðal fyrir kynferðisbrot gegn konum og stúlkum. Meðal annars er hann sakaður um að hafa tekið sig upp hafa mök við stúlku sem var yngri en fjórtán ára, samkvæmt AP fréttaveitunni. Hann var því ákærður fyrir að framleiða og eiga barnaníðsefni en nauðgunin átti sér stað árið 2010 eða 2011. Hann fæddist í Suður-Dakóta og tilheyrði Sicangu Sioux-ættbálknum, sem er hluti Lakota-þjóðarinnar. Leikarinn fyrrverandi er sagður hafa nýtt sér frægð sína eftir að hafa leikið í Óskarsverðlaunamyndinni áðurnefndu til að taka sér stöðu andlegs leiðtoga og heilara í samfélagi innfæddra í Bandaríkjunum. Þá stöðu mun hann svo hafa nýtt sér til að brjóta á konum og stúlkum í þessu samfélagi yfir rúmlega tveggja áratuga tímabil. Chasing horse hefur lengi staðið frammi fyrir ásökunum um kynferðisbrot en árið 2015 var hann einnig sakaður um mansal í Montana og meinaður aðgangur að svæði innfæddra þar. Þar að auki hefur hann verið ákærður í Kanada. Saksóknarar segja Chasing Horse hafa leitt sértrúarsöfnuð sem kallaðist Hringurinn, eða The Circle, og að fylgjendur hans hafi talið hann geta átt í samskiptum við anda. Margir eru sagðir hafa leitað til hans eftir hjálp við að bæta úr heilsu þeirra. Þegar hann var handtekinn í Las Vegas árið 2023 bjó hann í húsi með fimm eiginkonum. Þar fannst svo upptaka af áðurnefndri nauðgun á ungu stúlkunni en þá var hún orðin ein af eiginkonum Chasing Horse. Hér að neðan má sjá frá AP frá 2023. Upprunalega ákæran var felld niður þar sem hæstiréttur Nevada komst að því að saksóknarar höfðu brotið gegn reglubundnu ferli ákærudómstóla en nýr ákærudómstóll ákærði Chasing Horse aftur árið 2024. Ákærudómstólar eru sérstakt bandarískt fyrirbæri þar sem almennir kviðdómendur eru fengnir til að fara yfir sönnunargögn yfirvalda í tilteknum málum og segja til um hvort þeim þyki tilefni til að leggja fram formlegar ákærur. Chasing Horse hefur lýst yfir sakleysi sínu gagnvart öllum ákæruliðum.
Bandaríkin Erlend sakamál Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Sjá meira