Fékk afa sinn með sér á skólabekk Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 14. janúar 2026 20:01 Guðni Ágústsson tók áskorun Snorra Guðnasonar dóttursonar síns og ætlar í íslenskuáfanga með honum. Þeir segja um samvinnuverkefni að ræða og stefna á hæstu einkunn. Vísir/Bjarni Guðni Ágústsson fyrrverandi alþingismaður var ekki lengi að hugsa sig um þegar barnabarn hans bað hann um að koma með sér í íslenskuáfanga í framhaldsskóla og skellti sér með honum í námið. Þeir félagar ætla að skiptast á þekkingu og búast við háum einkunnum.
Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu býður nú upp á námskeiðið, Skaftfellingur skoðar heiminn sem er tileinkað rithöfundinum Þórbergi Þórðarsyni. Á þessu ári eru tuttugu ár frá stofnun Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit. Skólameistarinn stakk upp á hugmyndinni Snorri Guðnason 19 ára nemandi við skólann ákvað að fá afa sinn með sér í áfangann eftir að sjálfur skólameistarinn, Guðjón Ragnar Jónasson, kom með þá hugmynd. „Það var hann Guðjón Ragnar sem bauð mér að taka afa minn með í íslenskuáfanga í fjarnámi,“ segir Snorri. „Ég greip þetta strax því Þórbergur var mikið uppáhald þegar ég var strákur. Hann var m.a. meistari í að færa okkur inn í heim drauga, álfa og huldufólks,“ segir afinn, Guðni Ágústsson fyrrverandi alþingismaður og ráðherra Framsóknarflokksins. Samvinnuverkefni Þeir félagar ætla að skiptast á þekkingu í áfanganum en tæp 60 ár eru síðan Guðni sat síðast á skólabekk. „Ég ætla að kenna honum á tölvu og hann kennir mér á bækurnar í staðinn. Hann er íslenskufræðingur og bókmenntamaður. Það verður auðvelt að fá tíu með honum,“ segir Snorri aðspurður um hvort hann stefni á hæstu einkunn. „Ég reyni að fylgja honum ég læt hann ekki slá mig út. Þetta verða líflegir fundir þegar við hittumst til að læra saman,“ segir Guðni um hæl. Snorri segir að afi sinn hafi alla tíð haldið að sér bókum og Guðni samsinnir því og bætir við að barnabörnin sjö fluglæs. Guðni er líka þegar farinn að undirbúa sig fyrir námskeiðið og fer með vísu eftir Þórberg Þórðarsson. „Tak frá mér Guð allt sósusull, seiddar steikur og þvílíkt drull.Gefðu mér á minn græna disk,grautarslikju og úldinn fisk.“ Framsóknarmaður eins og öll þjóðin Þrátt fyrir að þeir félagar séu miklir mátar er Snorri ekki búinn að ákveða hvort hann fylgi afa sínum í pólitískum skoðunum aðspurður hvort hann sé Framsóknarmaður. „Ekki beint, kannski,“ svara Snorri Guðni er hins vegar viss um að hjörtu þeirra slái líka þar í takt „Jú víst, við hjartað eins og öll þjóðin.“ segir Guðni.
Skóla- og menntamál Framsóknarflokkurinn Bókmenntir Framhaldsskólar Sveitarfélagið Hornafjörður Grín og gaman Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira