Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 16. janúar 2026 08:00 Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu gæti átt enn frekari refsingu yfir höfði sér. EPA/JEON HEON-KYUN Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir misnotkun valds, hindrun framgangs réttvísinnar og fyrir skjalafals í tengslum við misheppnaða tilraun hans til að setja á herlög í landinu árið 2024. Um er að ræða fyrstu dómsuppkvaðninguna yfir forsetanum fyrrverandi, en hann gæti átt yfir höfði sér enn frekari refsingu, jafnvel dauðarefsingu, þar sem enn á eftir að kveða upp úrskurði í þremur málum til viðbótar sem tengjast embættisfærslum forsetans.
Þótt herlögin hafi aðeins gilt í skamman tíma áður en forsetinn var hrakinn til baka með ákvörðun sína, þá leiddi málið til verulegs umróts og mótmæla í landinu og þingmenn réðust í framhaldinu hratt í það verk að snúa við ákvörðun Yoon. Málið leiddi til pólitískrar krísu í landinu en samkvæmt umfjöllun BBC um málið í dag, gæti þessi fyrsti úrskurður gefið vísbendingu um hvað koma skal í áframhaldandi réttarhöldum yfir forsetanum fyrrverandi. Hann sætir ákæru fyrir ýmis brot, meðal annars misbeitingu valds og brot á kosningalögum. Alvarlegasta meinta brotið sem hann er ákærður fyrir er insurrection, en saksóknarar hafa farið fram á dauðarefsingu yfir Yoon sökum þessa. Þess er vænst að niðurstaða í því máli muni liggja fyrir í febrúar. Stuðningsmenn Yoon söfnuðust saman fyrir utan dómshúsið. EPA/JEON HEON-KYUN Hópur um hundrað stuðningsmanna Yoon hafði safnast saman við dómshúsið í dag til að fylgjast með framvindunni í dómssal í beinni útsendingu á stórum skjá fyrir utan. Einhverjir þeirra flögguðu rauðum mótmælaborðum sem á stóð „Yoon aftur! Gerum Kóreu frábæra á ný.“
Suður-Kórea Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Fleiri fréttir Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Sjá meira