Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Tómas Arnar Þorláksson skrifar 16. janúar 2026 12:44 Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. vísir/ívar Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra segir mikilvægt að fara varlega með gervigreind í starfsemi háskóla í kjölfar frétta um að yfirstjórn Bifrastar hafi notað gervigreind til að meta höfundarstöðu þriggja starfsmanna skólans.
Greint var frá því í gær að yfirstjórn Bifrastar hafi notast við gervigreindina Claude til að meta hvort þrír starfsmenn skólans væru réttilega skráðir meðhöfundar tveggja fræðigreina. Að mati lögfræðings starfsmannanna fer það gegn sjónarmiðum um persónuvernd og höfundarrétt. Félag akademískra starfsmanna við Bifröst samþykkti á fundi á miðvikudag að lýsa yfir vantrausti gegn Margréti Jónsdóttur Njarðvík, rektor skólans, og deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra skólans vegna þessa. Stjórn Bifrastar kemur saman á næstu dögum til að kanna málið og þá er málið komið fyrir siðanefnd Bifrastar en einnig hefur verið send ábending til Persónuverndar. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir mikilvægt að málið verði leyst á farsælan máta. „Ég mun ekki beita mér sérstaklega í þessu máli. Þetta er auðvitað sjálfseignarstofnun í einkaeign og nýtur auðvitað sjálfstæðis og ráðherra stígur ekki inn í slík mál.“ Að mati lögfræðings starfsmanna Bifrastar er röksemdafærsla gervigreindarinnar verulega loðin og rökin ósannfærandi miðað við minnisblöð yfirstjórnar. „Ég held það skipti miklu máli, og þetta hef ég verið að ræða töluvert að undanförnu. Gervigreindin er ofboðslega öflugt verkfæri. Eins og öll slík, þá er vandasamt að fara með hana. Fólk þarf bara að fóta sig í þessari nýju tækni og beita varúð.“ Í gögnum málsins kemur fram að rektor hafi óskað eftir því við siðanefnd skólans að starfsmennirnir þrír yrðu ekki upplýstir um að mál þeirra væri til skoðunar. Í svörum siðanefndar segir að það verklag gangi ekki upp því það fari gegn stjórnsýslulögum. Inntur eftir viðbrögðum við þessu segir Logi: „Það hafa engar slíkar upplýsingar borist inn á okkar borð og raunar engar upplýsingar beint frá skólanum á okkar borð. Enda er þetta sjálfseignarstofnun í einkaeign. Við höfum lesið ýmislegt úr fjölmiðlum en það er ekki alltaf öruggt að draga ályktanir af því.“
Gervigreind Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Háskólar Höfundar- og hugverkaréttur Deilur í Háskólanum á Bifröst Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira