Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. janúar 2026 20:13 Friðjón R. Friðjónsson vonar að staðan fari að róast í Bandaríkjunum. Vísir/Einar Sérfræðingur um bandarísk stjórnmál segir augljóst að staðan í Minneapolis í Minnesota sé eldfim og borgin sé púðurtunna vegna spennu á milli almennra borgara og illra þjálfaðra löggæslumanna á vegum innflytjendaeftirlitsins ICE. Vonandi muni staðan róast með tilkomu nýs yfirmanns í borginni.
Þetta er meðal þess sem fram kom í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Þar ræddi Friðjón R. Friðjónsson sérfræðingur um bandarísk stjórnmál stöðuna í Minnesota. Ástandinu þar er líkt við púðurtunnu og demókratar hóta því að standa í vegi fyrir frumvarpi um fjárveitingar til öryggis- og varnarmála verði breytingar ekki gerðar á starfsemi innflytjendaeftirlitsins ICE. Gríðarleg ólga er í vestan hafs í kjölfar þess að fulltrúar eftirlitsins skutu mann á fertugsaldri til bana um helgina. Fólk upplifi mikið öryggisleysi Breyttan tón má merkja hjá Bandaríkjaforseta sem vísaði upprunalega til þess að maðurinn hefði verið vopnaður og hættulegur. Maðurinn hafði á sér byssu sem hann hafði leyfi til án þess að munda hana. Trump kennir nú Demókrötum um ástandið. Til stendur að gera einhverjar breytingar á viðveru ICE í borginni og er Gregory Bovino umdeildur og hátt settur embættismaður í eftirlitinu sagður eiga að yfirgefa borgina í dag. Friðjón segir augljóst að ástandið sé eldfimt. „Manni finnst samt tónninn aðeins breytast með því að Bovino er sendur í burtu og Tom Homan er að koma inn í staðinn og hann er reynslumeiri og starfaði meðal annars fyrir Obama stjórnina. Þannig maður vonar það að tónninn sé aðeins að breytast og hlutirnir aðeins að róast.“ Hann segist upplifa mikið öryggisleysi meðal Bandaríkjamanna vegna hins eldfima ástands. Sjálfur eigi hann ættingja í Bandaríkjunum og segist Friðjón finna að fólki líði illa. „Þetta atvik sem gerðist núna um helgina virðist hafa breytt mjög miklu líka í því að það var meiri gagnrýni af hálfu Repúblikana og meira að segja samtök byssueigenda í Bandaríkjunum gagnrýndu ICE og hvernig þeir töluðu. Aftur, maður vonar að hlutirnir séu að lagast og breytast, svo sjáum við til.“ Hann segir alveg ljóst að mennirnir sem starfi á vegum ICE séu illa þjálfaðir. Borið hafi á mikilli gagnrýni á starfsemina. „Og hefur verið að koma fram í fjölmiðlum núna í dag og í gær gagnrýni meira að segja innan úr landamæraeftirliti Bandaríkjanna frá reyndum yfirmönnum og lögreglumönnum að þeir sem far þarna í þetta átak sem er þarna eru almennt óreyndari menn og verr þjálfaðir. Það eru kvót og birt upp úr hópspjöllum meðal manna þar sem þeir kalla þá idjóta og það er greinilegt að það er líka hiti innan löggæslunnar og eftirlitsins í Bandaríkjunum, þannig þeim líður ekki vel heldur.“
Bandaríkin Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira