Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 13:49 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Vísir/Ívar Fannar Dómsmálaráðherra segist opin fyrir því að skoða allar leiðir er miða að því að bæta meðferð kynferðisbrotamála. Kallað hefur verið eftir nokkurs konar sáttamiðlun í málaflokknum. Ráðherra segir það ekki fyrir alla og að það yrði þá úrræði sem væri í boði samhliða réttarkerfinu.
Drífa Snædal, talskona Stígamóta, kallaði eftir því á dögunum að skoðað yrði að bæta við nokkurs konar sáttaleið í kynferðisbrotamálum hér á landi. Um tíu prósent þeirra sem leita sér hjálpar hjá samtökunum kæra gerendur sína og reynslan þar er sú að stór hluti þolenda lýsi vantrausti á kerfinu. Þá fellur ríflega helmingur kærðra kynferðisbrotamála niður í meðferð lögreglu. Drífa er ekki sú fyrsta sem talar fyrir slíku. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, viðraði meðal annars þá hugmynd þegar hún opnaði sig um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í æsku. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segir þá staðreynd að gerendur játi sjaldnast sök í kynferðisbrotamálum vera stóran hluta vandans. „Allt sem er til þess fallið að geta gert þessi mál upp með þeim hætti að það fæst viðurkenning og lyktir er af hinu góða. Það eru hins vegar engar töfralausnir í þessum málaflokki,“ segir Þorbjörg. „En ég er boðin og búin að skoða allar þær leiðir sem geta gefist vel.“ Meirihluti kærðra kynferðisbrotamála ratar ekki fyrir dómstóla.vísir/Vilhelm Slík leið yrði þá úrræði sem væri til samhliða réttarkerfinu. „Vegna þess að við ætlum auðvitað ekki að fara í einhverja einkavæðingu á réttarkerfinu og hætta að ákæra menn fyrir ein alvarlegustu brot samfélagisns. Það kemur auðvitað ekki til greina. Þetta væri þá einhver valkostur sem hægt væri að nota samhliða í samtölum geranda og þolanda. En þetta á auðvitað ekkert alltaf við, það eru alls ekkert allir þolendur sem vilja þetta. En allt sem getur orðið til þess að loka þessum málum, gera þau upp með eðlilegum og uppbyggilegum hætti, hjálpar auðvitað til.“ Réttlæti sé möguleiki Hún segir framfarir hafa átt sér stað í rannsókn kynferðisbrota og að enn megi efla gæði rannsókna. „Þú getur bætt umgjörðina en sönnunarstaðan er og verður erfið. En það má heldur ekki horfa fram hjá því að við sjáum dag frá degi að það eru sakfellingar og það má ekki senda þau skilaboð til þolenda að það sé ekki hægt að ná fram réttlæti,“ segir Þorbjörg.
Kynferðisofbeldi Lögreglumál Dómsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira