Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. janúar 2026 13:28 Ólafur Ragnar Grímsson er ekki sáttur með tillöguna í hinu nýja frumvarpi. Vísir/Anton Brink Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands segir að það yrði alvarleg aðför að að sjálfstæðri stöðu forseta Íslands ef forsætisráðherra verður falið vald yfir vali á forsetaritara, æðsta embættismanni forseta Íslands. Hann segist ekki hafa neina trú á því að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætli sér að breyta um stefnu og efna í aðför að sjálfstæði embættisins.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn Ólafs Ragnars um frumvarp um breytingar á forsetaembættinu. Frumvarpið felur meðal annars í sér tillögu um ráðningu aðstoðarmanns forseta. Frumvarpinu var dreift á Alþingi í desember og mælti forsætisráðherra fyrir því á þingi í gær. Yrði háður vilja og valdi forsætisráðherra Ólafur Ragnar hefur skilað inn tvennum umsögnum vegna frumvarpsins, einni í desember og annarri nú í janúar. Hann segir í fyrstu umsögn sinni meðal annars að í kynningu á efni frumvarpsins hafi verið lögð áhersla á að það feli í sér ráðningu aðstoðarmanns og breytingu á greiðslum til handhafa. Hann segir að óvænt komi hinsvegar fram að færa eigi forsætisráðherra vald yfir vali á forsetaritara. „Það vald hefur forsætisráðherra aldrei haft. Í frumvarpinu segir einnig að forsetaritarinn sem skipaður er samkvæmt tillögu forsætisráðherra „ræður annað starfslið“ og „forsætisráðherra fer einn með aðrar heimildir veitingavaldshafa gagnvart forsetaritara.“ Slíkar breytingar yrðu alvarleg aðför að sjálfstæðri stöðu forseta Íslands. Hann yrði þar með í störfum sínum háður vilja og valdi forsætisráðherra.“ Hann bendir því næst á að þjóðin kjósi forseta í beinni kosningu. Sjálfstæði forsetans gagnvart forsætisráðherra og öðrum ráðherrum hafi í rúm áttatíu ár verið grundvallaratriði í lýðræðisskipan lýðveldisins. „Það sýna glöggt sögulegir atburðir. Það getur varla verið ætlun stjórnvalda að slík grundvallarbreyting á stöðu forseta Íslands sé hluti frumvarps sem samkvæmt yfirlýsingum á að fjalla um aðstoðarmann og greiðslur til handhafa,“ skrifar Ólafur Ragnar og bætir því við að síðustu í umsögn sinni í desember að það sé hans tillaga að þessi liður falli burt. Engin dæmi um að forsætisráðherra sækist eftir íhlutun við ráðninguna Í seinni umsögn sinni sem Ólafur Ragnar sendir forsætisráðuneytinu nú í janúar ítrekar hann þá tillögu að umrætt ákvæði verði fellt á brott. Þá hefur hann fengið greinargerð dr. Kára Hólmars Ragnarssonar og fjölda ljósrita af skjölum frá fyrri tíð. Ólafur Ragnar segir gögnin staðfesta niðurstöðu hans. „Gögnin sýna að í áttatíu ára sögu lýðveldisins hefur forsætisráðherra aldrei verið þátttakandi í ráðningu forsetaritara nema árið 2021. Þó var þá einungis um að ræða formlega aðkomu forsætisráðherra því dómnefnd að frumkvæði forseta var aðalgerandinn. Í samtölum er staðfest að þá var ekki ætlun forsætisráðherra að hafa forræði á vali forsetaritara. Aðeins að staðfesta vilja forseta.“ Ólafur Ragnar bendir ennfremur á að í samanlagðri sögu lýðveldisins séu engin dæmi um að forsætisráðherra sækist eftir íhlutun við ráðningu forsetaritara með þeim hætti sem lagður er til í frumvarpinu. „Engum forsætisráðherra hefur dottið í hug að fara í slíkan leiðangur. Undirritaður hefur enga trú á því að núverandi forsætisráðherra ætli að breyta hér um stefnu og efna í aðför að sjálfstæði forseta Íslands. Enda hefur ráðherrann sagt opinberlega að ætlunin sé eingöngu að breyta handhafalaunum og heimila að ráða aðstoðarmann forseta. Óþarfi er að etja ágætum forsætisráðherra út í átök um sjálfstæði forsetaembættisins sem gætu leitt í miklar ógöngur eins og vikið er að í greinargerð dr. Kára Hólmars Ragnarssonar.“
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fleiri fréttir Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárásin á borði rannsóknardeildar Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Sjá meira