„Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Eiður Þór Árnason skrifar 31. janúar 2026 14:45 Anton Sveinn McKee, formaður Ungra Miðflokksmanna og fyrrum sundkappi. Vísir/Einar Anton Sveinn McKee, Íslandsmethafi í sundi og formaður Ungra Miðflokksmanna, steig inn í þegar ungmenni réðust á mann við strætóbiðskýli nærri Aktu taktu í Garðabæ seint í gær.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglu sem stórfelld líkamsárás. Einn var handtekinn í gær en honum sleppt að lokinni yfirheyrslu. Brotaþoli sem er á fimmtugsaldri var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. Lögregla hefur greint frá því að hann hafi hlotið stórfellt líkamstjón. „Ég stíg inn á milli til að vernda fórnarlambið sem er að lenda í árásinni og gerði mitt til að koma í veg fyrir að árásin myndi halda áfram þangað til lögregla skarst í leikinn,“ segir Anton í samtali við fréttastofu. Hann hafi strax hringt á lögreglu og beðið með fórnarlambinu þar til laganna verðir komu að strætóskýlinu við Hafnafjarðarveg, fjarri Aktu taktu. Anton segir að enginn hafi flúið vettvang og árásarmaður í raun gert sig líklegan til að láta höggin dynja á ný. Engum vopnum var beitt, að sögn lögreglu. „Hann var með ögrandi tilburði og ætlaði að halda áfram. Ég náði að róa hann en maður var undirbúinn fyrir það að hann myndi ráðast á mig líka.“ Sá hafi á einum tímapunkti ætlað að stíga í áttina að kærustu Antons sem var með í för en hann gert sitt til að koma í veg fyrir það. Umrætt strætóskýli nærri Ásgarði í Garðabæ þar sem starfræktur er veitingastaður undir merkjum Aktu taktu.Já.is „Það voru engin frekari átök milli okkar. Ég gerði bara mitt til að vernda manninn,“ bætir Anton við. Fleiri ungmenni hafi verið viðstödd árásina en einn verið mest ögrandi eftir að hann kom á staðinn. Að sögn lögreglu voru fjögur til sex ungmenni á aldrinum sextán til sautján ára var á staðnum. Tvö þeirra hafi tekið þátt í árásinni. „Verið að berja hann í stöppu“ Anton átti leið hjá árásinni um klukkan hálf tólf í gærkvöldi og kveðst hafa grunað að um einhvers konar slagsmál væri að ræða. „Ég var bara að keyra framhjá og tók eftir því að það var hópur af unglingum og einhver lá á jörðinni en ég var ekki alveg viss hvað ætti sér stað. Þannig að ég ákvað að taka annan hring til þess að vera viss um að ég skildi hvað var í gangi þarna,“ segir Anton. Þegar hann kannaði málið nánar hafi verið augljóst hvað var á seyði. „Það liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu. Manni náttúrulega bara stendur ekki á sama og hann var algjörlega, algjörlega varnarlaus á götunni og bara lá á miðri götu. Þannig ég ákvað að stöðva bílinn og gera mitt sem samfélagsþegn til að koma í veg fyrir að það yrði algjörlega gengið frá honum.“ Skilur ekki hvers vegna enginn annar steig inn í Anton harmar að enginn hafi verið búinn að skerast fyrr í leikinn og nefnir að fjöldi ökumanna hafi átt leið hjá á þessum tíma. „Ætli það sé ekki fyrst og fremst leiðinlegt að náungakærleikurinn sé bara algjörlega farinn úr íslensku samfélagi. Ég veit ekki hversu margir bílar keyrðu þarna fram hjá og ég þurfti að taka auka hring til þess að keyra þarna fram hjá og stoppa. Það er eitthvað skrítið í gangi í íslensku samfélagi ef náungakærleikurinn er kominn svona langt niður.“ Í lok dags snúist þetta um að standa vörð um samfélagið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Garðabær Tengdar fréttir „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. 31. janúar 2026 11:42 Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Hópur ungmenna veittist að manni sem hlaut stórfellt líkamstjón af árásinni, að sögn lögreglu. Eitt ungmennið var handsamað í kjölfarið og er málið nú til rannsóknar. 31. janúar 2026 09:54 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
„Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. 31. janúar 2026 11:42
Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Hópur ungmenna veittist að manni sem hlaut stórfellt líkamstjón af árásinni, að sögn lögreglu. Eitt ungmennið var handsamað í kjölfarið og er málið nú til rannsóknar. 31. janúar 2026 09:54