Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 14:00 Leikmenn Arsenal fagna hér sigri í fyrstu Meistarabikarkeppni kvenna í fótbolta. EPA/DAVID CLIFF Arsenal var krýndur sigurvegari í fyrsta Meistarabikar kvenna í fótbolta í gær eftir að varamaðurinn Caitlin Foord tryggði liðinu 3-2 sigur á brasilíska liðinu Corinthians í framlengdum úrslitaleik.
Úrslitaleikurinn í nýrri keppni FIFA fyrir félagslið fór fram í úrhellisrigningu á Emirates-leikvanginum, þar sem liðið frá Norður-Lundúnum tryggði sér einnig 2,3 milljónir dollara í verðlaunafé eða meira en 280 milljónir íslenskra króna. Arsenal hlaut þar með stærstu peningaverðlaun í sögu kvennaknattspyrnufélagsliða en þetta er næstum fjórum sinnum meira en þær fimm hundruð þúsund evrur sem Arsenal fékk fyrir að vinna Meistaradeildina á síðasta tímabili. Skyttunum var spáð sigri í keppninni þar sem meistarar sex heimsálfa kepptu um bikarinn í fyrsta sinn. Fyrirliði Corinthians, Gabi Zanotti, jafnaði metin eftir að Olivia Smith hafði komið Arsenal yfir á 15. mínútu í fyrri hálfleik, áður en Lotte Wubben-Moy kom Arsenal aftur yfir með skalla eftir hlé. View this post on Instagram A post shared by Match of the Day (@bbcfootball) Arsenal var aðeins andartökum frá sigri en fékk á sig vítaspyrnu í uppbótartíma – sem Vic Albuquerque skoraði úr – áður en liðið barðist til baka í úrhellinu í fyrri hluta framlengingar. Sigurgleðin var þó dempuð eftir að markvörður Arsenal, Anneke Borbe, meiddist í árekstri seint í seinni hluta framlengingar og var borin af velli á sjúkrabörum eftir langt hlé vegna meðferðar meiðsla hennar á vellinum. Arsenal-konurnar tóku við bikarnum frá goðsögn félagsins, Arsene Wenger. „Það er ekki oft sem maður getur skráð sig á spjöld sögunnar hjá Arsenal því sagan hefur verið skrifuð svo oft,“ sagði markaskorarinn Lotte Wubben-Moy við Sky Sports eftir sigurinn. „Við stöndum á herðum risa. Að koma í þessa fyrstu keppni og vinna hana með öllum stuðningsmönnum okkar hér með stæl. Stuðningsmennirnir okkar eru dásamlegir og það er fyrir þá sem við gerum þetta,“ sagði Wubben-Moy. Fyrirliði Arsenal, Kim Little, bætti við: „Þetta er augljóslega einstök upplifun – þar sem þetta er fyrsti Meistarabikarinn. Við munum læra mikið af því að vinna í dag og fá bikar,“ sagði Little.
Enski boltinn FIFA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira