Alþjóðlegur dagur krabbameins - Heildræn endurhæfing Ljóssins Guðný Katrín Einarsdóttir, Erla Ólafsdóttir, Þórhildur Sveinsdóttir og Stefán Diego skrifa 4. febrúar 2026 08:02 Alþjóðlegur dagur krabbameins er í dag, 4. febrúar. Dagurinn er alþjóðlegur árveknidagur um krabbameinstengd málefni. Dagurinn hefur tvíþættan tilgang, annars vegar sem vitundarvakning um krabbamein og veita fræðslu, og hins vegar hvatning til stjórnvalda og einstaklinga um allan heim að grípa til aðgerða gegn sjúkdómnum. Þema alþjóðlegu herferðarinnar er „United by Unique“. Krabbamein snertir milljónir lífa á ótal hátt en það skilgreinir ekki hver við erum. Við erum meira en sjúkdómur, meira en tölfræði. Endurhæfing í Ljósinu Í tilefni dagsins fannst okkur í Ljósinu tilvalið að varpa ljósi á sérhæfingu Ljóssins og þá heildrænu endurhæfingu sem einkennir starfið. Við stofnun Ljóssins fyrir 20 árum var lagður grunnur að hugmyndafræði sem byggist á fagþekkingu iðjuþjálfa. Með árunum hefur starfsemin vaxið mjög, þjónustuþegum fjölgað og sömuleiðis fagstéttum. Með fleiri fagstéttum hefur starfsemin orðið enn heildrænni. Alltaf með það að leiðarljósi að styðja og efla fólk í því erfiða verkefni sem krabbameinsgreining og meðferð er. Þegar komið er í Ljósið er greinilegt að ekki er litið á endurhæfinguna sem eingöngu læknisfræðilegt ferli heldur er lögð áhersla á að virkja einstaklinginn sjálfan og styrkja hann og efla sem virkan þátttakanda í eigin bataferli. Umhverfið er heimilislegt og skipulagt á þann veg að það ýtir undir félagleg tengsl og vellíðan. Jafningjastuðningur og skapandi iðja eru jafn mikilvægir þættir og líkamleg þjálfun. Allir þessir þættir draga úr einangrun og auka sálræna vellíðan, sem samkvæmt rannsóknum hefur bein áhrif á bata og virkni. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi, þar á meðal iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, íþrótta- og næringarfræðingum, sálfræðingum, markþjálfum, heilsunuddurum, fjölskyldufræðingum og fleirum. Þessi fjölbreytti hópur fagaðila hefur víðtæka sérþekkingu og saman hefur okkur tekist að bjóða fjölbreytta endurhæfingu sem eflir líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Við leggjum okkur fram við að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur. Segja má að endurhæfingin í Ljósinu sé dæmi um íslenskt heilsuhjól í framkvæmd, þar sem líkamleg, andleg og félagsleg endurhæfing myndar eina heild. Þessi sýn tengist hugmyndafræði Ljóssins og er nátengd hugtakinu jákvæð heilsa. Þar er heilsa ekki mæld í tölum eða prófum heldur áhersla lögð á manneskjuna sjálfa, styrkleika hennar og möguleika til að aðlagast og ná jafnvægi í lífinu eftir áföll og veikindi. Með því að beina sjónum að öllum þáttum heilsu, verður endurhæfingin innihaldsríkari, mannlegri og árangursríkari. Í samvinnu við þjónustuþega setja fagaðilar upp skipulagða endurhæfingardagskrá sem tekur mið af færni hans, þörfum og áhugasviði og unnið er með þau markmið sem skipta einstaklinginn mestu máli. Í Ljósinu leggjum við áherslu á að efla og fræða. Við hjálpum fólki að draga fram og læra ný bjargráð í krefjandi aðstæðum og veitum þeim tækifæri til að efla sig líkamlega, andlega og félagslega. Jafningjastuðningur er mikilvægur Í Ljósinu eru einnig starfandi skipulagðir jafningjahópar sem hittast reglulega. Hér má nefna hópa bæði fyrir ungar konur og yngri karlmenn, strákamatinn fyrir eldri karlmenn og jafningjahóp fyrir fólk með langvinnt krabbamein. Markmið þessara hópa er að rjúfa einangrun, efla tengsl og jafningjastuðning, og styðja þannig undir bataferlið. Alvarleg veikindi snerta alla aðstandendur og því nær heildræn endurhæfing einnig til aðstandenda á öllum aldri og í Ljósinu geta þeir sótt bæði stuðning og fræðslu. Öll þessi þjónusta eflir heilsu og stuðlar að betri lífsgæðum. Íslenskt heilsuhjól Segja má að endurhæfingin í Ljósinu sé dæmi um íslenskt heilsuhjól í framkvæmd, þar sem líkamleg, andleg og félagsleg endurhæfing myndar eina heild. Höfundar eru nokkrir af sérfræðingum Ljóssins, endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar