Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 10:41 Starlink hefur verið mikið notað af bæði Rússum og Úkraínumönnum á undanförnum fjórum árum. Getty/Yan Dobronosov Rússneskir hermenn í Úkraínu hafa misst aðgang að internetinu gegn Starlink-gervihnetti eftir að Úkraínumenn báðu Elon Musk, eiganda fyrirtækisins SpaceX, um að takmarka aðgang Rússa að gervihnattaþyrpingunni. Herbloggarar í Rússlandi segja hermenn hafa kvartað yfir vandræðum við samskipti á víglínunni en hve áhrifamikil áhrifin eru ekki ljós enn.
Rússar hafa lengi notað Starlink-móttökustöðvar sem smyglað hefur verið til Rússlands í átökunum í Úkraínu. Meðal annars hafa þeir notað Starlink til samskipta og við að streyma myndböndum frá drónum, svo eitthvað sé nefnt. Úkraínumenn hafa á undanförnum mánuðum sagt frá því að Rússar hafi í meira mæli byrjað að koma Starlink-móttökustöðvum fyrir á stærri sjálfsprengidrónum og notað það til að stýra þeim. Það hafi bæði gert Rússum auðveldara að fljúga þeim og Úkraínumönnum erfiðara að stöðva drónana með rafrænum truflunum. Ekki hefur verið hægt að loka á aðgengi Rússa að gervihnattaþyrpingunni eftir því hvar móttökustöðvarnar eru, því það myndi einnig koma niður á Úkraínumönnum. Þess í stað var brugðið á það ráð að búa til lista yfir móttökustöðvar sem Úkraínumenn nota, bæði almenningur og hermenn, og verður lokað á aðgengi óskráðra stöðva á svæðinu. Til að reyna að stöðva rússneska sjálfsprengidróna, sem notaðir eru til umfangsmikilla árása í Úkraínu nánast daglega, hafa starfsmenn SpaceX gert breytingar svo að móttökustöðvar sem ferðast á meira en 75 kílómetra hraða missi tenginguna. Þetta var gert eftir að Mykhailo Fedorov, nýr varnarmálaráðherra Úkraínu, hafði samband við forsvarsmenn SpaceX í síðasta mánuði. The first steps are already delivering real results. We are working very closely with your team on the next important steps. Thank you for standing with us. You are a true champion of freedom and a true friend of the Ukrainian people.— Mykhailo Fedorov (@FedorovMykhailo) February 1, 2026 Rússneskir herbloggarar sem vitnað er í í grein New York Times hafa lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Einn varaði til að mynda við því að breytingin myndi færa Rússa nokkur ár aftur í tímann þegar kæmi að samskiptaleiðum og þeir þyrftu að nota á nýjan leik tækni eins og Wi-Fi og útvarpssendingar. Annar sagði lítið annað í boði fyrir rússneskar hersveitir að svo stöddu. Það muni taka tíma að fylla upp í það skarð sem Starlink-skorturinn skilur eftir sig. Óljóst hversu mikil áhrifin eru Úkraínskir hermenn sem blaðamenn Kyiv Independent ræddu við sögðu Starlink-skortinn hafa komið niður á rússneskum hersveitum í Úkraínu en þó mismikið. Einn sagði líklegt að árásum Rússa myndi fækka um tíma, samhliða því að yfirmenn ættu erfiðara með að eiga í samskiptum við undirmenn sína. Annar sagðist strax hafa séð mun á árásum Rússa en nokkrir aðrir vildu ekki taka undir það. Annar varaði þó við því að ef áhrifin yrðu einhver á Rússa myndu þau líklega eingöngu vara í nokkrar vikur, að mestu. Breytingarnar hafa einnig komið eitthvað niður á úkraínskum hermönnum sem notast einnig mikið við Starlink. Margir eru sagðir hafa ekki skráð móttökustöðvar sínar enn eða að þeir hafi átt erfitt með að fá skráningar viðurkenndar.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður SpaceX Elon Musk Tengdar fréttir Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Einn aðstoðarforstjóra rússnesku herleyniþjónustunnar GRU var skotinn og særður af óþekktum byssumanni í Moskvu í dag. Forstjóri GRU tók þátt í viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna í Abú Dabí í gær. 6. febrúar 2026 09:00 Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Að minnsta kosti 55 þúsund úkraínskir hermenn hafa fallið í átökum við Rússa, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Átökin hafa staðið yfir í tæp fjögur ár en Selenskí segir að margra til viðbótar sé saknað. Fjöldi fallinna hermanna er líklegal mun hærri, eins og forsetinn viðurkenndi sjálfur. 5. febrúar 2026 16:53 Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 3. febrúar 2026 07:00 Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Rússneskur dróni hæfði farþegarútu sem flutti námuverkamenn úr vinnu til borgarinnar Dnípró í dag. Fimmtán hið minnsta eru sagðir hafa látist. 1. febrúar 2026 17:28 Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira
Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Einn aðstoðarforstjóra rússnesku herleyniþjónustunnar GRU var skotinn og særður af óþekktum byssumanni í Moskvu í dag. Forstjóri GRU tók þátt í viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna í Abú Dabí í gær. 6. febrúar 2026 09:00
Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Að minnsta kosti 55 þúsund úkraínskir hermenn hafa fallið í átökum við Rússa, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Átökin hafa staðið yfir í tæp fjögur ár en Selenskí segir að margra til viðbótar sé saknað. Fjöldi fallinna hermanna er líklegal mun hærri, eins og forsetinn viðurkenndi sjálfur. 5. febrúar 2026 16:53
Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 3. febrúar 2026 07:00
Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Rússneskur dróni hæfði farþegarútu sem flutti námuverkamenn úr vinnu til borgarinnar Dnípró í dag. Fimmtán hið minnsta eru sagðir hafa látist. 1. febrúar 2026 17:28