Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Kjartan Kjartansson skrifar 6. febrúar 2026 15:26 Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum.
Hanna Kristín Skaftadóttir, formaður Félags akademískra starfsmanna og ein þeirra sem siðanefndin skoðaði, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor, bað siðanefnd háskólans um að kanna hvort þrír starfsmenn hefðu ranglega verið skráðir meðhöfundar fræðigreina. Því til stuðnings lagði hún fram minnisblöð sem rannsóknarstjóri og forseti viðskiptadeildar unnu með hjálp gervigreindar á greinunum. Niðurstaða þeirra var að starfsmennirnir þrír ættu ekki að vera skráðir meðhöfundar þar sem þeir hefðu ekki lagt nægilega að mörkum til greinanna. Vantraust á rektor og stjórnendurna tvo Félag akademískra starfsmanna við Bifröst lýsti yfir vantrausti á Margréti rektor, rannsóknarstjórann og forseta viðskiptadeildar, vegna þess hvernig þau stóðu að siðanefndarmálinu gegn starfsmönnunum þremur. Einum starfsmannanna þriggja var sagt upp fyrir ótengdar sakir í sömu viku og honum var greint frá siðanefndarmálinu í nóvember. Ástæða uppsagnirinnar var sögð sú að hann hefði kennt að hluta áfanga við annan háskóla. Nafnleynd um hver sendi inn ábendingu Margrét rektor sagði í bréfi til starfsmanna og kennara Bifrastar í vikunni að málið væri fordæmalaust þar sem aðili hefði bent á möguleg brot starfsmannanna og að hann nyti nafnleyndar. Sigurrós Jónsdóttir, samskiptastjóri Háskólans á Bifröst, staðfestir við Vísi að ábendingin hafi borist rektor. Hún hafi ekki verið nafnlaus heldur njóti sá sem benti rektor á meint brot nafnleyndar. Spurð að því sérstaklega hvort að ábendingin hafi komið frá annað hvort rannsóknarstjóra sjálfum eða deildarforseta ítrekaði Sigurrós að ábendandinn nyti nafnleyndar. Stjórn háskólans ákvað að kalla til sáttamiðlara til þess að freista þess að lægja öldurnar vegna siðanefndarmálsins. Sáttamiðlarinn eigi að starfa í umboði stjórnarinnar Í yfirlýsingu sinni sagðist stjórnin treysta Margréti til þess að stýra daglegum rekstri háskólans. Sáttaferlið væri þó á ábyrgð stjórnarinnar.
Háskólar Deilur í Háskólanum á Bifröst Skóla- og menntamál Borgarbyggð Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira