Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Jakob Bjarnar skrifar 6. febrúar 2026 11:31 Birgir Örn segist hálflamaður eftir að hafa verið kallaður á fund ritara Viðreisnar þar sem hann var spurður út í „viðbjóðslega lygasögu“ um meint ofbeldi sem hann á að hafa stundað. viðreisn Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu, sem betur er þekktur sem Biggi lögga þá er hann starfaði í lögreglunni hefur staðið í prófkjörsbaráttu en hann vill leiða Viðreisn í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Nú segir hann að reynt sé að bregða fyrir hann fæti með lygasögu um ofbeldi.
Birgir segist í samtali við Vísi vera hálf orðlaus eftir að þetta kom upp og hann átti erfitt með svefn í nótt vegna þessa. En gerðar hafa verið tilraunir til þess að hafa áhrif á framboð hans með því sem Biggi segir fáránlegar og meiðandi lygar. Galin árás á persónu Bigga „Í gær tók steininn úr þegar ég var skyndilega boðaður á fund ritara flokksins og borin var undir mig saga um viðbjóðslegt ofbeldi sem ég átti að hafa beitt ákveðna manneskju. Þetta átti að vera umtalað,“ segir Biggi í færslu á Facebook-síðu sinni. Hann segist ekkert skilja í því hvaðan þetta er sprottið eða hvernig fólk finnur flugufót fyrir svona nokkru. Hvernig verður svona nokkuð til? „Það er einmitt spurningin sem ég spyr sjálfan mig. Þetta er algjörlega galið,“ segir Biggi sem er sleginn. En hann hafi bara ekki hina minnstu hugmynd. „Ég hef velt allskonar fyrir mér. Þetta á að vera eitthvað sem gerðist fyrir einhverjum árum. Ég er búinn að vera opinber persóna í allskonar viðkvæmum störfum. Ef það væri einhver fótur fyrir þessu þá væri þetta að sjálfsögðu komið upp. Svo fer ég í prófkjör og spunnin er upp einhver saga. Vægast sagt furðulegt.“ Taldi rétt að stíga fram Biggi segist búa yfir reynslu sem hann telur vert að miðla í gegnum stjórnmálin. En nú sé hann hugsi, er það þess virði. Hann segir að þeirri persónu sem spann þennan lygavef hafi næstum tekist ætlunarverk sitt. En bara næstum því. Og nú reynir hann að ná tökum á atburðarrásinni með að segja frá þessu. „Já ég var mjög á báðum áttum. En ég veit bara ekkert hvar þessi lygi er stödd svo mér fannst ég verða að grípa hana sjálfur til að reyna að ná stjórn.“ Kosið verður á morgun og því ekki seinna vænna en reyna að bregðast við.
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira