„Sorglegra en orð fá lýst“ Eiður Þór Árnason skrifar 6. febrúar 2026 20:20 Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst, og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans. Manhattan Marketing/Bifröst „Síðustu mánuðir hafa verið mér afar þungbærir og ég hef þurft að ganga í gegnum ferli sem ég aldrei sá fyrir. Ég hef þurft að verja æru mína og akademískan starfsferil fyrir ótrúlega rætinni aðför að mér, knúinni áfram af eigin yfirmönnum við Háskólann á Bifröst, sem kærðu mig og kollega mína til siðanefndar skólans.“
Þetta segir Ragnar Már Vilhjálmsson, lektor í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst, sem var ásamt öðrum sakaður um að vera ranglega skráður sem meðhöfundur að fræðilegri grein. Siðanefnd skólans hreinsaði hann og tvo aðra starfsmenn af öllum ásökunum í dag. Ragnar gerir athugasemd við það hversu langan tíma tók að fá botn í málið og bendir á að siðanefnd Háskólans í Belgrad, sem meðhöfundar hans starfi við, hafi komist að sömu niðurstöðu 19. desember síðastliðinn. Dýrt ferli Ragnar segir samstarfsfólk á Bifröst vera í áfalli vegna ásakananna en Margrét Jónsdóttir rektor og stjórnendur skólans hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í málinu. Ragnar gerir málið upp í færslu á Facebook-síðu sinni og segir að hann hafi starfað við Háskólann á Bifröst í rúmlega 21 ár. „Að fá þessa áskorun frá samstarfsmönnum mínum eftir það líf sem ég hef lagt skólanum í gegnum þessa rúmlegu tvo áratugi er sorglegra en orð fá lýst og lýsir vel virðingar- og skeytingaleysi stjórnenda gagnvart mannauði sínum.“ Hluta ferlisins hafi lokið í dag með úrskurði siðanefndar skólans. „Ég vissi alltaf að þetta yrði niðurstaðan á endanum en ferlið hefur verið langt. Og það hefur líka verið mjög dýrt, bæði andlega og fjárhagslega,“ segir Ragnar. Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst lýsti yfir vantrausti á stjórnsýslu Margrétar Jónsdóttur Njarðvík, rektors skólans, í tengslum við mál þriggja starfsmanna sem send voru til siðanefndar. Þá var Persónuvernd bent á vinnubrögð rektors sem virðist hafa notað gervigreind til að rökstyðja ásakanir um að starfsmenn hafi merkt sig ranglega sem meðhöfunda fræðigreina. Sannarlega tekið þátt í greinaskrifunum Hvað varðar fræðigreinina sem hann var sakaður um að hafa ekki tekið þátt í að skrifa segir Ragnar að hann hafi ásamt samstarfsmanni sínum Haraldi Daða Ragnarssyni skrifað rúmlega 35 prósent af texta greinarinnar og haft aðkomu að skrifum þriggja erlendra meðhöfunda. „Ég og kollegi minn við Bifröst höfum á undanförnum árum verið í rannsóknarsamstarfi við erlenda kollega okkar í Slóvakíu og Serbíu þar sem við höfum rannsakað viðhorf nemenda í þessum þremur löndum til notkunar gervigreindar við nám og kennslu.“ Úr þeim rannsóknum hafi þeir skrifað fræðigreinar á borð við þessa. Það sé af og frá að þeir hafi átt „ekkert vitsmunalegt framlag“ í grein sem kærð var til siðanefndar. „Þetta var meðal annars staðfest af siðanefnd Háskólans í Belgrad, þar sem okkar meðhöfundar voru dregnir fyrir siðanefnd síns skóla til að svara til saka um þessa grein, vegna fyrirspurnar stjórnenda á Bifröst sem tilkynntu meðhöfundum okkar um að við sætum undir ásökunum á Íslandi. Siðanefndin í Serbíu hreinsaði okkur af öllum ásökunum þann 19. desember. Sama dag fengu stjórnendur á Bifröst sömu staðfestingu frá Serbíu en samt var málið látið hanga hjá siðanefnd Háskólans á Bifröst í næstum því 50 daga til viðbótar, þegar löngu var orðið ljóst og staðfest að þessar ásakanir áttu ekki við nein rök að styðjast,“ skrifar Ragnar í færslu á Facebook-síðu sinni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Skóla- og menntamál Háskólar Höfundar- og hugverkaréttur Tengdar fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26 Stjórnin treystir Margréti Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans. 5. febrúar 2026 16:49 Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. 5. febrúar 2026 07:02 Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans. 4. febrúar 2026 13:58 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26
Stjórnin treystir Margréti Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans. 5. febrúar 2026 16:49
Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. 5. febrúar 2026 07:02
Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans. 4. febrúar 2026 13:58