Jókerinn tók fram úr goðsögn Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. febrúar 2026 10:00 Nikola Jokic er nánast óstöðvandi. AAron Ontiveroz/The Denver Post Serbneski miðherjinn Nikola Jokic tók fram úr Oscar Robertson á topplistanum yfir þrefaldar tvennur í NBA deildinni með frammistöðu sinni fyrir Denver Nuggets í 136-120 sigri gegn Chicago Bulls í nótt.
Jókerinn skoraði 22 stig, gaf 17 stoðsendingar og greip 14 fráköst í sinni 182. þreföldu tvennu. Oscar Robertson, einnig þekktur undir gælunafninu Big O eða stóra O-ið, sat lengi í langefsta sæti listans. Hann náði sinni síðustu 181. og síðustu tvennu í 1039. leiknum á ferlinum, þeim næstsíðasta, árið 1974. Jokic hefur hins vegar aðeins spilað 782 leiki og er langt frá því að vera hættur. Nikola Jokić passed Oscar Robertson for 2nd on the all-time triple-doubles list with a superb performance!🃏 22 PTS (7-12 FGM)🃏 14 REB🃏 17 AST🃏 4 BLK pic.twitter.com/t4gy5WkuAj— NBA (@NBA) February 8, 2026 „Hann er goðsögn“ sagði Jokic einfaldlega um Robertson eftir leik. Jókerinn er nú í öðru sæti listans á eftir Russell Westbrook sem hefur náð 207 þreföldum tvennum. Congrats to Nikola Jokić of the @nuggets for moving to 2nd all-time in triple-doubles! pic.twitter.com/Og1XOyAn7G— NBA (@NBA) February 8, 2026 Báðir eru enn spilandi en hægst hefur töluvert á Westbrook, sem hefur aðeins náð fjórum þreföldum tvennum á þessu tímabili gegn nítján hjá meiðslahrjáðum Jokic. „Þegar miðherjinn þinn er með sautján stoðsendingar í leik, þetta er ekki eðlilegt. Nema hjá honum. Hann er algjörlega ótrúlegur“ sagði David Adelman, þjálfari Nuggets, um Jokic.
NBA Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Sjá meira