Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 09:59 Kolbrún Magnúsdóttir er varabæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna í Hafnarfirði en hyggst skipta yfir í Framsókn. Vísir/aðsend Kolbrún Magnúsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fulltrúi í fræðsluráði bæjarins, hefur sagt skilið við flokkinn og hyggst færa sig yfir í Framsókn og bjóða sig fram fyrir flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Kolbrún segist hafa eftir vandlega íhugun komist að þeirri niðurstöðu að hún finni meiri samhljóm með áherslum Framsóknar í Hafnarfirði.
Kolbrún greinir frá þessu í færslu á Facebook í morgun. „Á síðustu fjórum árum hef ég starfað innan Samfylkingarinnar. Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að halda áfram pólitísku starfi mínu með Framsókn. Sú ákvörðun byggir á því hvar ég tel mína reynslu, þekkingu og krafta nýtast best þegar horft er til framtíðar Hafnarfjarðar. Þar finn ég nú meiri samhljóm við áherslur og þá nálgun sem Framsókn leggur til grundvallar í bæjarstjórn. Hjarta mitt slær fyrir Hafnarfjörð og mér er annt um að bæjarfélagið þróist áfram sem sjálfbært samfélag þar sem velferð fólks, öflug þjónusta og ábyrg nýting fjármuna fara saman,“ skrifar Kolbrún meðal annars í færslunni sem sjá má í heild sinni hér að neðan. Framsóknarflokkurinn myndar sem stendur meirihluta með Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði en Samfylkingin hefur verið í minnihluta í bæjarfélaginu á yfirstandandi kjörtímabili. „Ég trúi því að góð stjórnun byggi á skýrri sýn, mannúð og ábyrgð. Sú nálgun mótar bæði mína faglegu vinnu og mitt pólitíska starf. Í bæjarstjórn vil ég leggja áherslu á að efla mannlega þætti innan stjórnsýslunnar, styrkja samtal og samráð við íbúa og stuðla að samfélagi þar sem fólk finnur til öryggis, þátttöku og jafnvægis,“ skrifar Kolbrún ennfremur í færslunni.
Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira