Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2026 11:45 Hnefarnir voru látnir tala í Charlotte í nótt. Getty/David Jensen Hópslagsmál brutust út, lögregluþjónar mættu á gólfið og fjórum leikmönnum var vísað úr húsi, þegar upp úr sauð með látum í þriðja leikhluta í 110-104 sigri Detroit Pistons gegn Charlotte Hornets, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Lætin öll má sjá á myndbandinu hér að neðan en þau hófust eftir að Moussa Diabate frá Charlotte braut á Jalen Duren. Þeir Diabate og Duren fóru reiðir hvor að öðrum og skullu höfuð þeirra saman. Halda þurfti svo í Diabate þegar hann reyndi að kýla Duren, áður en fleiri leikmenn tóku þátt í slagsmálunum. Miles Bridges sást til að mynda kýla Duren og þá kom Isaiah Stewart aðvífandi til að svara fyrir sinn mann, tók Bridges í lás og virtist ná að kýla hann nokkrum sinnum. Alls stóðu áflogin yfir í um hálfa mínútu en tóku loks enda þegar jafnvel lögregluþjónar voru mættir út á gólfið. Diabate, Duren, Stewart og Bridges var öllum vísað úr húsi, og reyndar fylgdi Charles Lee þjálfari Charlotte sömu leið í fjórða leikhluta eftir reiðiöskur sín að dómara. Tilfinningarnar brutust út „Tilfinningarnar voru miklar. Auðvitað myndum við vilja að þetta snúist bara um körfubolta en stundum gerast hlutir. Það voru bara allir að leggja allt í sölurnar,“ sagði Duren eftir leik. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem menn reyna að vera extra agressívir á móti okkur og tala á móti okkur, hver sem ástæðan er. Þegar allt kom til alls þá varð tilfinningahitinn of mikill og mönnum hljóp kapp í kinn. Það gerist,“ sagði Duren. Bridges tjáði sig á Instagram og bað stuðningsmenn Charlotte og félagið allt afsökunar. Hann myndi þó alltaf verja liðsfélaga sína.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira