Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 11. febrúar 2026 19:45 Atli Dagur Sigurðsson segir berklasmitið hafa haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Vísir/Lýður Valberg Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax. „
Ég myndi segja mikil áhrif bara andlega. Ég er með fjölskyldu heima, lítil börn, og þetta var alveg frekar mikið sjokk,“ segir Atli Dagur Sigurðsson sem starfar sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans. Að minnsta kosti átta starfsmenn bráðamóttökunnar voru útsettir fyrir berklum. Vel gæti hafa verið að þeir hafi smitast af baketríusýkinguni fyrir mörgum árum en atvikið hefur vakið upp umræðu innan heilbrigðisstéttarinnar um starfsaðstæður. „Sýkingarvarnir á bráðmóttökunni, það eru eiginlega engar sýkingavarnir á bráðamóttökunni. Við erum með alls konar veirupestir, bakteríur og annað sem að við getum smitast af og sjúklingar líka. En þarna komu upp þessi berklasmit og þetta er mikill skellur má segja,“ segir Atli. Hann þurfti að fara í bæði blóðprufur og röntgenmyndatöku til að útiloka aktíva sýkingu. „Núna er ég byrjaður á fjögurra mánaða sýklalyfjakúr sem að skerðir mín lífsgæði satt að segja. Ég er með kviðverki alla daga og þetta hefur áhrif á þéttni annarra lyfja, mikið orkuleysi.“ Atli segist hins vegar ekki íhuga að segja upp starfinu. „Að vera hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni er mín ástríða þannig að nei, ég ætla ekki að hætta á bráðamóttökunni. Ég vil bara að eitthvað verði gert fyrir okkur þannig að við getum unnið okkar vinnu.“ Hamfarir á hverjum degi Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar boðuðu til fundar síðdegis í dag vegna stöðu mála á sjúkrahúsinu. Landspítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í eitt ár vegna álags á spítalanum. Dæmi eru um að einstaklingar séu á bráðamóttökunni í tíu daga vegna plássleysis á öðrum deildum. Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, segir starfsmennina vera komna langt yfir þolmörk. „Ég myndi lýsa þessu sem hamförum á hverjum degi. Eins og hefur komið fram er þessi deild ætluð fyrir 36 bráðveika og slasaða sjúklinga en þarna liggja á hverjum degi um hundrað sjúklingar. Aðstaðan býður engan veginn upp á það að það sé hægt að sinna fólki með mannsæmandi hætti. Það eru ekki nógu margar sturtur eða klósett til þess að geta boðið fólki á að fá mannsæmandi meðferð,“ sagði hún í kvöldfréttum Sýnar. Lillý Valgerður Pétursdóttir, fréttamaður Sýnar, bendir á að hún hafi tekið viðtal við bráðalækni fyrir tíu árum síðan og þá hafi ástandið verið óásættanlegt. Aðspurð segir Helga að fjöldi lausna sé fyrir hendi, fyrst og fremst þurfi að bæta húsnæðið sjálft. „Það er náttúrulega sorglegt að það sé ekki kominn í gagnið nýr spítali, ég held það séu 27 ár síðan við hófum að ræða það að byggja nýjan spítala og ákveða hvar við ætluðum að byggja hann. Þannig að húsnæði bráðamóttökunnar er algjörlega úr sér gengið, síðan er margt annað hægt að gera hratt,“ segir Helga. Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags hjúkrunarfræðinga.Vísir/Lýður Valberg Þar nefnir hún heimahjúkrun sem þarf að betrumbæta og fjölga starfsfólki. Einnig leggur hún til að sett verði á laggirnar úrræði þar sem fólk geti leitað til utan hefðbundins vinnutíma ef það þarf á bráðaþjónustu að halda. „Það er hægt að útbúa léttbráðamóttökur eins og við þekkjum á Norðurlöndunum. Það er fullt hægt að gera og við köllum eftir því að stjórnvöld fari að gera það núna. Ekki fleiri skýrslur, ekki fleiri spretthópa, ekki fleiri áhættumat eða spár, það þarf aðgerðir núna.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira