Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Kristinn Hróbjartsson skrifar 16. febrúar 2026 08:00 Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Þó að árásin hafi verið í apríl var það ekki fyrr en um haustið sem PST gat fullyrt að Rússar hafi staðið á bakvið hana. Ísland hefur lengi búið við þá þægilegu sjálfsmynd að landfræðileg einangrun sé okkar besta vörn. Við lítum á okkur sem áhorfendur að átökum í Evrópu fremur en þátttakendur. Ný skýrsla hugveitunnarVörðu um skemmdarverk Rússa á innviðum í Evrópu bendir hins vegar til að þessi sýn sé bæði úrelt og vafasöm. Skemmdarverktakar og gigg-hagkerfið Það sem gerir þessa þróun sérstaklega flókna er aðferðafræðin. Í stað þjálfaðra útsendara nota rússneskar leyniþjónustur nú í auknum mæli „verktaka“ sem þær finna í heimi skipulagðra glæpa eða í viðkvæmum, jaðarsettum hópum. Í gegnum dulkóðuð samskiptaforrit eins og Telegram eru einstaklingar fengnir til að fremja íkveikjur, skemma tækjabúnað eða brjótast inn í vatnsveitur gegn greiðslu. Með því að nota milliliði verða mörkin milli venjulegra afbrota og ríkisrekinna skemmdarverka óljós. Það flækir rannsókn mála og tefur pólitísk viðbrögð, þar sem atvikin virðast í fyrstu vera tilfallandi lögreglumál fremur en ógn við þjóðaröryggi. Innviðaeyjan Ísland Í nýju öryggisumhverfi Evrópu eru innviðir ein fremsta víglínan. Í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu fjölgaði skemmdarverkum sem Rússar eru taldir hafa staðið að um 246% á einu ári. Skemmdarverkin beinast ekki gegn hernaðarmannvirkjum heldur lífæðum samfélagsins: orkukerfum, fjarskiptum og flutningsleiðum og öðrum mikilvægum innviðum. Markmiðið er ekki eyðilegging í hefðbundnum skilningi, heldur að skapa óvissu, prófa viðbrögð og valda efnahagslegum skaða. Á Íslandi eigum við lífsgæði okkar góðum innviðum að þakka. Endurstofnvirði þeirra er um 147% af vergri landsframleiðslu. Mörg kerfin eru samofin og búa ekki yfir mörgum varaleiðum. Þrátt fyrir þetta eigum við ekki lagalega skilgreiningu á mikilvægum eða ómissandi innviðum, ábyrgð á þeim og umboði til aðgerða. Við reiðum okkur á innviði en vernd þeirra er ekki í forgangi. Ekki lengur lágspennusvæði Norður-Atlantshaf er ekki lengur lágspennusvæði eins og fréttaflutningur síðustu vikna sýnir. Á undanförnum árum hefur svæðið orðið eitt mikilvægasta öryggis- og hagsmunasvæði stórveldanna, þar sem hernaðarleg staða og flutningsleiðir skipta sífellt meira máli. Ísland er lykilaðili í stuðningi við eftirlit með ferðum kafbáta og skuggaflota Rússa. Framkvæmdastjóri NATO kallar okkur augu og eyru bandalagsins á Norður-Atlantshafi, sem er árétting á mikilvægi staðsetningar Íslands og jafnframt áminning um að við erum hluti af sama aðgerðasvæði og nágrannar okkar. Ólíkt nágrönnum okkar búum við ekki að áratugahefð innlends varnarstarfs og öryggismenningar, sem þýðir að við þurfum að fjárfesta og byggja upp okkar eigin getu til greininga og viðbragðs, og það án tafar. Við höfum ekki haft augun nógu mikið á varaleiðum og viðnámsþrótti innviðanna heldur dregið lappirnar með nauðsynlega uppbyggingu. Og þar er ekki stjórnvöldum einum um að kenna, heldur erum það við - borgararnir - sem setjum aðra hluti en öryggismál í forgang þegar kemur að kosningum. Öryggi Íslands byggir ekki lengur á fjarlægð okkar frá öðrum löndum, heldur á því hversu fljót við erum að átta okkur á að landfræðileg einangrun er engin vörn lengur. Höfundur er meðstofnandi hugveitunnar Vörðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rússland Noregur Úkraína Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar